Enski boltinn

Hughton: Ég hefði haldið Norwich uppi

Tómas Þór Þórðarson skrifar
Hughton er ósáttur.
Hughton er ósáttur. Vísir/Getty
Chris Hughton, fyrrverandi knattspyrnustjóri Norwich, er ekki kátur með brottreksturinn frá félaginu en Norwich lét hann fara eftir 1-0 tap á heimavelli gegn West Bromwich um síðustu helgi.

Norwich er í 17. sæti úrvalsdeildarinnar, fimm stigum frá fallsæti en á svakalega erfiða leiki eftir í deildinni. Liðið mætir Liverpool, Manchester United, Chelsea og Arsenal í síðustu fjórum leikjum tímabilsins.

„Ég er auðvitað mjög vonsvikinn með að hafa misst starfið en á sama tíma gríðarlega stoltur af því að hafa verið knattspyrnustjóri Norwich,“ segir Hughton í yfirlýsingu sem hann sendi frá sér vegna málsins.

Hughton tók við starfinu af Paul Lambert, núverandi stjóra Aston Villa, sem kom liðinu upp um tvær deildir á tveimur árum og hélt liðinu í úrvalsdeildinni áður en hann hvarf á braut.

Hughton er búinn að halda Norwich tvívegis í úrvalsdeildinni með lítið fé á milli handanna og vonaðist til að vera með liðið í deild þeirra bestu fjórða tímabilið í röð.

„Ég skil pirring manna með gengið að undanförnu en ég er handviss um að við vorum á réttri leið með að skrifa nýjan kafla í sögu félagsins og vera fjögur ár í röð í ensku úrvalsdeildinni.“

„Saman vorum við tilbúnir í síðustu fimm leikina og við vorum vissir um að geta launað fólkinu stuðninginn með því að halda okkur í deildinni,“ segir Chris Hughton.

Richard Bevan, framkvæmdastjóri samtaka knattspyrnustjóra í ensku deildakeppninni, sendi einnig út yfirlýsingu þar sem hann lýsti yfir óánægju samtakanna með brottreksturinn og sérstaklega tímasetningu hans.

„Við verðum að átta okkur á því hversu langt Norwich er komið á stuttum tíma. Fyrir fjórum árum var liðið í C-deildinni. Chris hefur staðið sig frábærlega sem knattspyrnustjóri á sínum ferli og það er mikil synd að sjá einn af okkar bestu ensku stjórum vera rekinn án þess að fá tækifæri til að klára tímabilið,“ segir Richard Bevin.

Neil Adams tók við starfinu af Hughton en hann fær það erfiða verkefni að halda liðinu í deildinni.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×