Enski boltinn

Methagnaður hjá Everton

Það er gleði hjá Everton þessa dagana.
Það er gleði hjá Everton þessa dagana. vísir/getty
Reksturinn á knattspyrnuliði Everton gengur mjög vel.

Félagið skilaði hagnaði upp á tæpa 5,5 milljarða króna á síðustu leiktíð. Það er methagnaður hjá félaginu.

Félagið græddi mest á nýjum sjónvarpssamningi deildarinnar og einnig var hagnaður af sölu leikmanna. Marouane Fellaini var til að mynda seldur á háa upphæð.

Innan vallar hafnaði liðið svo í fimmta sæti í ensku úrvalsdeildinni.

„Þetta var sérstakt tímabil fyrir okkur. Vorum með ungan og spennandi leikmenn og spiluðum nýjan fótbolta. Við vildum ekki að þetta tímabil endaði," sagði Bill Kenwright, stjórnarformaður félagsins.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×