Mikilvægt sigurmark hjá Austin | Loksins tapaði Newcastle Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 29. nóvember 2014 00:01
Sjö leikjum í ensku úrvalsdeildinni er lokið.Arsenal vann góðan sigur á West Bromwich Albion, Manchester United vann öruggan sigur á Hull City, Glen Johnson tryggðu Liverpool sigur á Stoke og Gylfi Þór Sigurðsson lagði upp mark Swansea í jafntefli gegn Crystal Palace. QPR vann mikilvægan sigur á Leicester City í botnbaráttu ensku úrvalsdeildarinnar í dag. Leikurinn, sem fór fram á Loftus Road, var hinn fjörugasti, en voru fimm mörk skoruð. Argentínumaðurinn Esteban Cambiasso kom Leicester yfir strax á 4. mínútu og þannig var staðan fram á 37. mínútu þegar Wes Morgan, fyrirliði gestanna, skoraði sjálfsmark. Leroy Fer sá svo til þess að QPR færi með forystu inn í leikhléið þegar hann skoraði á lokamínútu fyrri hálfleiks. Leicester-menn jöfnuðu á 67. mínútu með marki Jeffrey Schlupp, en aðeins sex mínútum síðar tryggði Charlie Austin QPR sigurinn með sínu sjötta deildarmarki í vetur. Vinstri bakvörðurinn Aaron Cresswell reyndist örlagavaldurinn í viðureign West Ham og Newcastle United á Upton Park, en hann skoraði eina mark leiksins á 56. mínútu. Moussa Sissoko, hinn öflugi leikmaður Newcastle, fékk tvær áminningar með skömmu millibili í seinni hálfleik og var rekinn út af. West Ham er í 5. sæti með 21 stig, tveimur fleiri en Newcastle sem var búið að vinna fimm leiki í röð fyrir leikinn í dag. Danny Ings kom í veg fyrir að Aston Villa fagnaði sínum fyrsta sigri síðan 13. september, þegar hann skoraði fyrir Burnley úr vítaspyrnu þremur mínútum fyrir leikslok í leik liðanna á Turf Moor. Joe Cole kom Villa yfir í fyrri hálfleik með sínu fyrsta marki á leiktíðinni, en er aðeins þriðji leikmaður Villa sem hefur skorað í deildinni í vetur.
Enski boltinn Mest lesið Körfuboltakvöld: Tilþrif tímabilsins til þessa Körfubolti Skírði soninn LFC og Mac Allister lét draum feðganna rætast Enski boltinn Varði fjórar vítaspyrnur með brotna hendi Fótbolti Flautumark hjá FH og ÍR með þeim í Höllina Handbolti „Komum eins og aumingjar inn í þennan leik“ Körfubolti KA í undanúrslit á kostnað bikarmeistaranna Handbolti „Jólasteikin mun bragðast betur í ljósi þessa sigurs“ Körfubolti Jóga og pílates lykillinn að snöggri endurkomu Enski boltinn Brasilíumenn byrja vel undir stjórn Menezes - myndband Fótbolti Stjarnan - Álftanes 108-104 | Unnu grannaslaginn naumlega Körfubolti Fleiri fréttir Skírði soninn LFC og Mac Allister lét draum feðganna rætast Jóga og pílates lykillinn að snöggri endurkomu Fantasýn: „Hann setti allt á 3 og það kom upp 19“ Alexander Isak fékk sænska gullboltann „Salah líkaði ekki að vera í skugganum af Isak og Wirtz“ Amorim vill Neves Benti á hinn íslenska Dan Burn Lést á leiðinni heim úr fótboltaleik Forsætisráðherrann hótar Roman Abramovich og segir að „klukkan tifi“ „Sýnum kvennaíþróttir af því að þær eru frábærar“ Snéri aftur í fótbolta eftir 35 ára hlé: „Kalla mig Jackie Grealish“ Óttast að besti leikmaður Liverpool verði frá Ungstirnið skallaði meistarana áfram Gat ekki komið í veg fyrir að City færi áfram City sagt ætla að keppa við Liverpool og United um Semenyo Man United ósátt við Marokkó og FIFA Sápan trolluð: „Þetta er þessi klikkhaus með röddina“ Stjarnan fór í dulargervi: Setti stuðningsmann United á óþekka listann Garnacho skaut Chelsea áfram í undanúrslit Vísa á bug fullyrðingum Bruno sem hafa valdið fjaðrafoki Hlaut 21 árs dóm fyrir að aka inn í skrúðgönguna í Liverpool Bjarni segir Newcastle stærra félag en Tottenham Moyes ældi alla leiðina til Eyja Bróðirinn sendir Amorim skilaboð: „Frelsið Kobbie Mainoo“ „Besta frammistaða United undir stjórn Amorim“ Segir að Salah muni sjá eftir því að fara í janúar Sjáðu mörkin úr ótrúlegu átta marka jafntefli á Old Trafford Skemmtilegt fyrir fólkið heima og United verðskuldaði sigur Jafnt í ótrúlegum átta marka leik á Old Trafford Vildi ekki skýra ummælin um verstu 48 klukkutímana frekar Sjá meira