Formúla 1

Taktík að taka á sig þessa hörðu refsingu

Stefán Árni Pálsson skrifar
Bragi Þórðarson er sérfræðingur í Formúlunni en hann lýsir Monzunni á Sýn Sport Viaplay alla helgina.
Bragi Þórðarson er sérfræðingur í Formúlunni en hann lýsir Monzunni á Sýn Sport Viaplay alla helgina.

Kimi Antonelli, forystusauður stigakeppni ökuþóra, mun ræsa aftastur á heimavelli í Formúlu 1-keppni helgarinnar eftir að hafa fengið á sig refsingu. Refsinguna fær hann eftir að skipta þurfti um vélarbúnað í bíl hans fyrir komandi keppnishelgi á Monza.

Refsingin verður það mikil að hann fellur sjálfkrafa aftast á ráslínuna, óháð því hvernig honum gengur í tímatökunni. Það er sérstaklega sárt fyrir hinn 20 ára gamla Antonelli þar sem ítalski kappaksturinn í Monza er hans heimakappakstur.

„Hann er að skipta um mótor og allt í rauninni í vélasalnum. Það er náttúrulega með þessum nýju reglum að þá erum við að sjá mun fleiri bilanir og fleira af mótorum og rafmagnsbúnaðinum þar í kring. Þannig er þetta reglum samkvæmt ef þú skiptir um, ef þetta væri bara sprengihreyfillinn væri þetta kannski fimm sæta refsing á ráslínu eða eitthvað svoleiðis. En út úr því að skipta um allt heila klabbið þá mun hann bara ræsa aftastur í heimakeppninni, alveg sama hvar hann endar í tímatökum,“ segir Bragi Þórðarson, Formúlu sérfræðingur Sýnar Sports, um umrædda refsingu.

En vissi hann af þessari refsingu áður en liðið fór í þessar aðgerðir?

„Þetta er í rauninni strategískt hjá Mercedes að gera þetta á braut eins og Monza, sem er tiltölulega auðvelt að taka fram úr og þar er mikið af beinum köflum að vera með ferskan mótor, þú græðir alveg svolítið á því þannig að hann verður hraðari fyrir vikið. En það verður áhugavert að sjá hvað hann getur gert úr 22. sæti á ráslínu.“

Bragi vill meina að Antonelli eigi samt sem áður séns í að taka keppnina.

„Auðvitað, en líkurnar fóru ansi mikið niður út af þessu. Ég svona spái honum í mögulega topp fimm, eitthvað svoleiðis. En ég meina, við höfum séð ökumenn gera þetta. Eftirminnilega árið 2021 gerði Lewis Hamilton þetta í Brasilíu, tók nýjan mótor með því og ræsti aftastur bæði í sprettkeppni og alvöru keppninni og endaði á að vinna Max Verstappen í þeirri keppni, þannig að það verður áhugavert á sunnudaginn hvernig þetta fer.“

Klippa: Taktík að taka á sig þessa hörðu refsingu



Fleiri fréttir

Sjá meira


×