Tusk nú líklegasti arftaki van Rompuy Atli Ísleifsson skrifar 28. ágúst 2014 14:20 Donald Tusk tók við embætti forsætisráðherra Póllands árið 2007. Vísir/AFP
Donald Tusk, forsætisráðherra Póllands, er nú talinn líklegastur til að hreppa embætti forseta leiðtogaráðs ESB. Leiðtogar aðildarríkja ESB koma saman til fundar á laugardaginn þar sem þeir munu koma sér saman um arftaka Hermans van Rompuy, ásamt arftaka Catherine Ashton í stóli utanríkismálastjóra sambandsins. Verði Tusk fyrir valinu yrði það mikill sigur fyrir aðildarríki í austurhluta álfunnar, sem gengu flest í sambandið fyrir tíu árum síðan. Tusk er Evrópusinni, hægra megin við miðju, en hefur neitað því opinberlega að vera einn af þeim sem til greina kæmi í stöðuna. Heimildarmenn Reuters sögðu að van Rompuy myndi varpa fram nafni Tusk sem hluta af heildarpakka í símtölum sínum við leiðtogum fyrir fundinn. Síðustu mánuði hefur nafn danska forsætisráðherrans Helle Thorning-Schmidt oftast verið nefnt í tengslum við stöðuna. Náist samkomulag um Tusk er líklegast að Federica Mogherini, utanríkisráðherra Ítalíu, muni taka við stöðu Ashton í stóli utanríkismálastjóra sambandsins.Í frétt Euractiv segir að Valdis Dombrovskis, fyrrum forsætisráðherra Lettlands, sé talinn vera álitlegasti varakosturinn, náist ekki samkomulag um Tusk, eða þá að hann ákveði að þiggja ekki stöðuna.
Mest lesið Svona berðu kennsl á fyrstu einkenni heilabilunar Innlent Simmi biður Söndru og sjúkraliðana afsökunar Innlent Slökkviliðsstjóri lætur af störfum eftir ábendingar Innlent Hélt um fætur eiginmannsins meðan hann sogaðist úr glugga í háloftunum Erlent Misboðið vegna ömurlegrar gyðingaandúðar Innlent Tekur upp hanskann fyrir Lite-bjórinn Innlent Ríkið borgar brúsann vegna langdreginnar rannsóknar á árás við skólalóð Innlent Alvarlegar líkamsárásir í Reykjavík Innlent „Búnir að þróa með sér spilafíkn áður en þeir byrja að veðja“ Innlent Verða höfð með í ráðum vegna niðurrifsins við Sæbraut Innlent Fleiri fréttir Vinna ekki með Bandaríkjamönnum af þjóðaröryggisástæðum Telja sjötugan Þjóðverja hafa byrlað og nauðgað fjölda kvenna Forsætisráðherra Úkraínu lætur af embætti Danska leyniþjónustan ræður mörghundruð nethermenn Mette-Marit útskrifuð af sjúkrahúsi Dómari ógildir sátt Trump og skattayfirvalda Hélt um fætur eiginmannsins meðan hann sogaðist úr glugga í háloftunum Þingið samþykkir stjórnarskrárviðauka til að koma forsetanum frá Boðað til þingkosninga í Ísrael þann 27. október Trump boðar gjaldtöku á Hormússundi Blása lífi í glæður Falklandseyjadeilunnar fyrir stórleikinn Rannsaka morð Widdecombe sem hryðjuverk ESB boðar aldurstakmörk á samfélagsmiðlum Segja 2.700 hafa látist vegna hitabylgju Sænskur Evrópuþingmaður kærir danskan kollega til lögreglu McConnell birtir mynd af sér á spítala Íranir og Bandaríkjamenn halda árásunum áfram Miklir skógareldar nærri París Minnst 27 létust þegar eldur kviknaði á bar í Taílandi Níu ára stúlka meðal þeirra sem fórust og árásir enn nær daglegt brauð Tveir látnir eftir að tveir hófu skothríð Maður í haldi grunaður um að hafa myrt fyrrverandi ráðherra Íran og Bandaríkin skiptast á árásum Lindsey Graham er látinn Var látin í sólarhring áður en hún fannst Fjórir í haldi eftir árás á blaðamenn á Vesturbakkanum Tuttugu og þriggja enn saknað eftir mannskæða gróðurelda Félag Kushner hafi fengið landið vegna falsaðra afsala Dermot Murnaghan er látinn Manninum sleppt úr haldi Sjá meira