Adebayor skaut Tottenham í fimmta sætið Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar 9. febrúar 2014 00:01
Emmanuel Adebayor var hetja Tottenham þegar að liðið vann mikilvægan 1-0 sigur á Everton í fyrri leik dagsins í ensku úrvalsdeildinni. Markið skoraði hann á 65. mínútu en það var úr fyrstu skottilraun heimamanna á markið. Tottenham fékk þá aukaspyrnu á miðju vallarins og var Kyle Walker fljótur að átta sig og stakk boltanum fram. Adebayor náði að halda Seamus Coleman frá sér og afgreiða boltann laglega í nærhornið með vinstri fæti. Everton byrjaði betur í leiknum en Leon Osman komst nálægt því að skora í tvígang. Leon Osman komst tvívegis nálægt því að skora en Hugo Lloris, markvörður Tottenham, var vel á verði. Adebayor hefur nú skorað sex mörk í níu leikjum á tímabilinu en hann hafði nánast ekkert spilað með liðinu áður en Andre Villas-Boas var rekinn um miðja desembermánuð.Tim Sherwood, sem tók við Villas-Boas, hefur hins vegar veðjað á Tógómanninn og var hann verðlaunaður í dag með þremur stigum. Tottenham hafði ekki unnið í síðustu tveimur deildarleikjum sínum en liðið er nú komið með 47 stig og komst með sigrinum upp í fimmta sæti deildarinnar, upp fyrir Everton sem situr eftir með 45 stig.Gylfi Þór Sigurðsson var ekki í leikmannahópi Tottenham í dag vegna meiðsla.
Enski boltinn Mest lesið Uppgjörið: FH - Breiðablik 2-3 | Blikar bikarmeistarar eftir framlengingu Íslenski boltinn Jökull í Kaleo hitti stjörnur Rauðu djöflanna og spilaði á Old Trafford Enski boltinn Liverpool vinni ekki deildina haldi liðið áfram á þessari braut Enski boltinn Richarlison sýndi nýliðunum enga miskun Enski boltinn Úlfarnir steinlágu gegn City Enski boltinn Markalaust á Villa Park Enski boltinn Öll helstu atvikin úr opnunarleiknum: Átti varnarmaður Bournemouth að vera rekinn af velli? Enski boltinn „Ég hélt að við værum komin lengra“ Enski boltinn Amorim brattur: „Ég er bjartsýnni“ Enski boltinn Semenyo tjáir sig: „Fótboltinn sýndi sínar bestu hliðar þegar mest á reyndi“ Enski boltinn Fleiri fréttir Úlfarnir steinlágu gegn City Draumabyrjun nýliðanna úr norðri | Muniz bjargaði Fulham Richarlison sýndi nýliðunum enga miskun Markalaust á Villa Park Semenyo tjáir sig: „Fótboltinn sýndi sínar bestu hliðar þegar mest á reyndi“ Jökull í Kaleo hitti stjörnur Rauðu djöflanna og spilaði á Old Trafford Amorim brattur: „Ég er bjartsýnni“ Liverpool vinni ekki deildina haldi liðið áfram á þessari braut Öll helstu atvikin úr opnunarleiknum: Átti varnarmaður Bournemouth að vera rekinn af velli? „Ég hélt að við værum komin lengra“ „Betra er seint en aldrei“ Endurkomusigur í stórskemmtilegum opnunarleik Opnunarleikurinn var stöðvaður vegna kynþáttaníðs Aston Villa sektað og bannað að nota marga bolta Liverpool kaupir ungan ítalskan miðvörð Brentford að slá félagaskiptametið Enska augnablikið: Hamingjureiturinn Stórkostleg tölfræði Salah í fyrsta leik Fjölskylda Jota á Anfield í kvöld „Maður er búinn að vera á nálum“ Spurningar um Isak tóku yfir fundinn Gummi Ben og Hjörvar Hafliða fóru að rífast Enska augnablikið: Eftirminnilegasta lýsing Íslandssögunnar Nýr framherji Man. United treður með miklum tilþrifum í körfuna „Gefa áhorfendum innsýn í það sem sérfræðingarnir gera“ Dagskráin: Fyrsti leikur í enska boltanum Gervigreindin spáir í fyrstu umferðina Sjáðu upphitunarþátt fyrir enska boltann í heild Xhaka gerður að fyrirliða tveimur vikum eftir að hann var keyptur Enska augnablikið: Englar og djöflar Sjá meira
Öll helstu atvikin úr opnunarleiknum: Átti varnarmaður Bournemouth að vera rekinn af velli? Enski boltinn
Öll helstu atvikin úr opnunarleiknum: Átti varnarmaður Bournemouth að vera rekinn af velli? Enski boltinn