Hull City í undanúrslit í fyrsta sinn í 84 ár Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 9. mars 2014 14:10 Vísir/Getty
Hull City tryggði sér í dag sæti í undanúrslitum ensku bikarkeppninnar með 3-0 sigri á Sunderland á heimavelli. Fyrri hálfleikur var tíðindalítill en Hull fékk þó kjörið tækifæri til að ná forystunni þegar vítaspyrna var dæmd á Sebastian Larsson fyrir að bregða Yannick Sagbo í teignum. Oscar Ustari varði hins vegar slaka spyrnu Sone Aluko. Hull tryggði sér síðan sigurinn í seinni hálfleik með þremur mörkum á níu mínútna kafla. Curtis Davies skoraði fyrsta markið með skalla eftir aukaspyrnu Toms Huddlestone.David Meyler bætti svo við marki eftir að hafa stolið boltanum af Lee Cattermole og sá síðarnefndi gerði sig svo aftur sekur um slæm mistök þegar sending hans til baka fór beint á Matty Fryatt sem skoraði þriðja mark heimamanna og gulltryggði sigurinn. Þetta er sögulegur áfangi fyrir Hull, en 84 ár eru liðin frá því liðið lék síðast í undanúrslitum enska bikarsins. Árið 1930 mætti Hull City, þá í annarri deild, stórliði Arsenal undir stjórn Herberts Chapman. Tvo leiki þurfti til að knýja fram úrslit, en Arsenal vann seinni leikinn 1-0 á Villa Park og tryggði sér svo enska bikarinn með sigri á Huddersfield Town í úrslitaleik á Wembley.
Enski boltinn Mest lesið „Missir ástina á fótbolta við að taka þátt í svona bulli“ Íslenski boltinn Liverpool og Barcola náð samkomulagi Fótbolti Áhorfendur í áfalli eftir að leikmaður hrundi niður göng Fótbolti Willum mættur fyrstur upp á spítala alla daga Sport Óvenjulegur vinskapur Haaland vekur athygli Fótbolti Ótrúlegt innkast varð að marki Fótbolti KR-ingar geta ógnað ótrúlegu afreki Skagamanna í kvöld Íslenski boltinn Mun Bezos verða eigandi Liverpool? Fótbolti Gefur lítið fyrir orð kollega síns: „Ég skil ekki svona“ Fótbolti Mikil eftirvænting vegna endurkomu Ingebrigtsen Sport Fleiri fréttir Liverpool staðfestir samning við Barcelona um lánið á Araujo Englandsmeistararnir ekki sannfærandi Í hóp lufsulegra lánsmanna Liverpool Mætti þrátt fyrir ráð um annað í skugga ásakana Aston Villa hyggst fylla í götin Ellefu ensk lið í eldlínunni víðsvegar um heim Andri Lucas aftur á skotskónum eftir meiðsli Grípa í taumana eftir banaslys Bruno orðinn leikmaður Arsenal: „Ég verð ykkar stríðsmaður“ Táningur Manchester United fær 24 karata gullspjald Liverpool fær miðvörð Barcelona á láni Coventry keypti leikmann af mótherjum Valsmanna Vildi ekki selja fyrirliðann og lofar að styrkja liðið í staðinn Arteta segir að leikmenn Arsenal hafi verið „brjálaðir“ eftir tapið Segir að nýi maðurinn í brúnni hjá Newcastle sé „rokkstjarna“ NBA-goðsögn fjárfestir í enska fótboltafélaginu Ipswich Town Barcelona blandar sér í baráttuna um Rodri Sauð á leikmönnum Arsenal eftir tapið fyrir Betis Fann fyndna lausn á fljótfæru húðflúri sínu Gamli West Ham-leikmaðurinn allt í öllu á sigri á Arsenal Jaissle ráðinn aðalþjálfari Newcastle Sagði það „augljósa“ ákvörðun að velja Man City frekar en Arsenal Konan sem á að rífa upp gengi Manchester United Chelsea tapaði fyrsta leik Mudryks í tvö ár Umdeildasti maður sumarsins orðaður við Tottenham Liverpool vill að minnsta kosti tvo leikmenn PSG United ekki lengi þjálfaralaust Mudryk fær séns til að sanna sig á ný „Þetta er búið, við erum góðir“ Dýrust í sögu ensku deildarinnar Sjá meira