Wigan gerði City aftur óleik Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 9. mars 2014 14:14 Vísir/Getty
Bikarmeistarar Wigan gerðu sér lítið fyrir og slógu út Manchester City í 8-liða úrslitum ensku bikarkeppninnar í dag með 2-1 sigri á Etihad-leikvanginum. City náði þar með ekki að hefna ófaranna eftir bikarúrslitaleikinn í fyrra er Wigan vann óvæntan 1-0 sigur á Wembley. Wigan varð síðasta liðið til að tryggja sér sæti í undanúrslitum ensku bikarkeppninnar og mætir þá Arsenal. Sheffield United og Hull eigast við í hinni undanúrslitaviðureigninni.Martin Demichelis er væntanlega ekki í neinu sérstöku uppáhaldi hjá stuðningsmönnum Manchester City þessa daganna en mistök hans reyndust City enn og aftur dýrkeypt. Á 26. mínútu braut Demichelis á Marc-Antoine Fortune innan vítateigs og úr vítaspyrnunni skoraði Jordi Gomez. Það voru svo ekki liðnar nema tvær mínútur af seinni hálfleik þegar Wigan tvöfaldaði forskot sitt. James Perch skoraði þá af stuttu færi eftir fyrirgjöf frá James McArthur.Manuel Pellegrini gerði skömmu síðar þrefalda skiptingu og það var fyrst þá sem City vaknaði til lífsins.Samir Nasri minnkaði muninn eftir 68. mínútna leik og eftir það héldu leikmenn City meira og minna til í vítateig Wigan. Fleiri urðu mörkin hins vegar ekki og það verður því Wigan sem mætir Arsenal í undanúrslitum bikarkeppninnar 13. apríl á Wembley. Wigan, sem situr í 7. sæti ensku B-deildarinnar, á því enn möguleika á að verja bikarmeistaratitilinn sem liðið vann í fyrra.
Enski boltinn Mest lesið Óvinur Íslands heldur nú með Íslandi Handbolti Þjálfari Dana um Ísland: „Nokkrir af bestu handboltamönnum heims“ Handbolti ICE-fulltrúar á Vetrarólympíuleikunum: „Þetta er hersveit sem drepur“ Sport „Þeir virðast bara vilja brjóta múra fyrir hann“ Handbolti Búnir að tímasetja leik Íslands og Danmerkur Handbolti Sjáðu Viktor skora hjá Barcelona fyrir framan landsliðsþjálfarann Fótbolti Viktor yngstur í sögunni til að skora Evrópumark á Nývangi Fótbolti Áfall fyrir Króata Dags skömmu fyrir úrslitastundu Handbolti Daninn leggur orð í belg eftir gagnrýni Dags og Gísla Þorgeirs Handbolti EM í dag: Einn ótrúlegasti sólarhringur í sögu íslenskra íþrótta Handbolti Fleiri fréttir Sjáðu laglega afgreiðslu hins sjóðheita Barrys Sjóðheitur Dorgu frá í um tíu vikur Barry bjargaði stigi fyrir Everton Ekki gerst hjá Arsenal í átján ár Sjáðu draumamark Dorgu og öll hin í sigri United á Arsenal Varamaðurinn tryggði United sigur gegn Arsenal Aston Villa lifði af orrahríð fyrir norðan og náði Manchester City Hlín utan hóps er Lehmann kom að marki í fyrsta leik Estevao með mark og stoðsendingu gegn lánlausu Palace liði Sjáðu alla dramatíkina úr enska boltanum Van Dijk segir að það hafi „klárlega verið brotið á sér“ í sigurmarkinu „Sigurmark undir lokin er fullkomið fyrir okkur“ Liverpool-vandræðin halda áfram og Bournemouth með sigurmark í blálokin Stórbrotið sigurmark hjá Harry Wilson Haaland fékk smá hvíld í kærkomnum sigri City Hömruðu meðan járnið var heitt í sigri gegn Sunderland Sonur Wayne Rooney spilaði á Old Trafford Arsenal sagt vera að skoða kaup á Julián Álvarez í sumar Gæti farið frá Liverpool til Tottenham Íslenskir spéfuglar vöktu kátínu Spursara en reittu tvo til reiði Konaté syrgir föður sinn Van Dijk: Sýndi Slot vanvirðingu með þessari spurningu Alisha Lehmann verður nýr liðsfélagi Hlínar Þættir um Manchester United í anda „The Crown“ Leikmenn City endurgreiða stuðningsmönnum Óttast að Grealish verði lengi frá Xabi Alonso myndi segja nei við öllum núna nema Liverpool Bauð Paul Scholes heim til sín til að ræða málin Leikmaður Liverpool lenti í eltihrelli Vilja sjá þessa stjóra í brúna hjá United Sjá meira