Enski boltinn

Höddi Magg missti sig í útsendingu

Hörður Magnússon íþróttafréttamaður fór gjörsamlega hamförum þegar hann lýsti leik Manchester United og Sunderland í undanúrslitum enska deildarbikarsins í gær.

Lokamínútur leiksins voru æsispennandi. Sunderland náði yfirhöndinni þegar örfáar mínútur voru eftir af leiknum en mexíkóski framherjinn Chicarito skoraði í næstu sókn á eftir. Því þurfti að grípa til vítaspyrnukeppni til að fá úr því skorið hvort liðið kæmist í úrslit deildarbikarins.

Það er óhætt að segja að lokamínúturnar hafi verið fjörugar og lýsing Harðar Magnússonar er alveg einstök.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×