Hlaut þakkir frá páfanum Stefán Ó. Jónsson skrifar 24. júlí 2014 23:55 Páfinn heilsar dótturinni sem Ibrahim fæddi í fangelsi í maí. VÍSIR/AFP
Meriam Ibrahim, súdönsk kona sem flúði til Ítalíu eftir að dauðadómur hennar fyrir trúvillu var dreginn til baka, hitti í gær páfann í Róm. Fréttastofa BBC greinir frá þessu. Ibrahim hlaut athygli heimsins þegar dómstóll í Súdan fyrirskipaði að hún yrði hengd fyrir að hafna íslamstrú. Mannréttindasamtök víða um heim fordæmdu þessa ákvörðun, en Ibrahim var komin átta mánuði á leið þegar dómurinn féll og dvaldi í fangelsi með ungum syni sínum. Ibrahim fæddi dóttur sína, Mayu, meðan á fangelsisvist hennar stóð. Fjölskylda Ibrahim kærði hjónband hennar í liðinni viku á þeim forsendum að ólöglegt sé fyrir íslamskar konur að giftast út fyrir trúna en eiginmaður hennar, Daniel Wani, er kristinn – rétt eins og Ibrahim. Eftir að hæstiréttur felldi úr gildi dauðadóminn yfir henni, eyddi Ibrahim rúmum mánuði í bandaríska sendiráðinu í Khartoum. Hún hefur nú komist til Rómar með eiginmanni sínum og börnum, en sjálfur forsætisráðherra Ítalíu, Matteo Renzi, tók á móti henni á flugvellinum í gær. „Í dag er dagur fagnaðar,“ sagði Renzi er hann hitti Ibrahim og fjölskyldu hennar. Hún fékk svo að hitta páfann sem þakkaði henni fyrir trúfestu sína, en Ibrahim hélt því fram fyrir dómstólum að hún hefði alla tíð verið kristin. Fundur hennar með páfanum varði í um hálfa klukkustund og segir talsmaður Páfagarðs hann vera stuðningsyfirlýsingu til allra þeirra sem hafa þurft að þjást fyrir trú sína. Ítölsk yfirvöld höfðu ekki haft neina aðkomu að máli Ibrahim áður en hún ákvað að flýja til landsins en varautanríkisráðherra Ítalíu, Lapo Pistelli, flaug með henni frá Khartoum. Hann birti mynd á Facebook-síðu því til staðfestingar með yfirskriftinni, „Markmiðinu náð.“ Post by Lapo Pistelli.
Tengdar fréttir Dauðadómur fyrir trúvillu dreginn til baka í Súdan Konu sem dæmd var til hengingar fyrir að snúa baki við íslamstrú hefur verið sleppt úr fangelsi. 23. júní 2014 14:53 Dæmd til dauða komin átta mánuði á leið 27 ára kona í Súdan var einnig dæmd til að hljóta 100 svipuhögg fyrir hjúskaparbrot. 15. maí 2014 16:38 Kona sem sýknuð var í Súdan í gær handtekin á ný Meriam Ibrahim var dæmd til dauða í síðasta mánuði fyrir að snúa baki við íslamstrú en henni var sleppt úr fangelsi í gær. 24. júní 2014 13:51 Mest lesið „Þetta er kannski dýrasta tækið sem barnið á“ Innlent Lést í slysi á Hálsasveitarvegi Innlent Handtökur í vændisrannsókn lögreglu Innlent Hættu skyndilega við viðræðurnar í Sviss Erlent „Virðist vera einhverskonar gamaldags sjómennskuhefndaraðgerð“ Innlent „Það verða engir konungar“ Erlent Lögreglustjóri braut meðalhófsreglu Innlent Einn vildi sýkna þegar dómur fyrir sérlega sársaukafulla nauðgun var staðfestur Innlent Ólafur Þ. Harðarson sakaður um fánaslugs Innlent Áhöfnin hlúði að Hólmsteini á siglingunni til Hvalfjarðar Innlent Fleiri fréttir Konungur Norðursins sækir að Starmer Hættu skyndilega við viðræðurnar í Sviss Íranir segjast ætla að taka gjald af siglingum um sundið „Það verða engir konungar“ Telja dráp á rússneskum teiknara „pólitískt launmorð“ Ein stærsta drónaárásin á Rússland frá upphafi stríðsins Leghálskrabbameini nánast útrýmt í Bretlandi eftir bólusetningarátak Þetta er í samkomulagi Trumps við Írani Fuglaflensan stráfelldi kópa á suðurskautinu Trump undirritaði samkomulag við Írani Spá allt að fjörutíu stiga hita Rex Heuermann fær lífstíðardóm Eins árs gamalt barn skotið til bana af lögreglumanni Rex Heuermann leiddur fyrir dómara í dag Mette-Marit krónprinsessa fékk ný lungu í vel heppnaðri aðgerð Skopmyndateiknari skotinn til bana Rússnesk freigáta skaut varúðarskotum að skútu í Ermarsundi Rússar skipulögðu íkveikjur gegn forsætisráðherra Bretlands Segjast hafa sprengt olíuhreinsistöð nærri Moskvu Stefna á að hafa ný aðildarríki í styttri ól Öll áhöfnin talin af Samkomulag um samkomulag undirritað og klárt Erfiðir tímar fyrir norsku konungsfjölskylduna Sonur krónprinsessunnar áfrýjar dómi Hrapaði til bana eftir að kennari gleymdi að festa reipi Það sem er vitað um samkomulagið við Írani Kallaði Michelle Obama karlmann á afmælishátíð Trump Bretar banna samfélagsmiðlanotkun upp að 16 ára aldri Réðust á dómkirkjuna í Kænugarði Sonur krónprinsessunnar dæmdur í fjögurra ára fangelsi Sjá meira
Dauðadómur fyrir trúvillu dreginn til baka í Súdan Konu sem dæmd var til hengingar fyrir að snúa baki við íslamstrú hefur verið sleppt úr fangelsi. 23. júní 2014 14:53
Dæmd til dauða komin átta mánuði á leið 27 ára kona í Súdan var einnig dæmd til að hljóta 100 svipuhögg fyrir hjúskaparbrot. 15. maí 2014 16:38
Kona sem sýknuð var í Súdan í gær handtekin á ný Meriam Ibrahim var dæmd til dauða í síðasta mánuði fyrir að snúa baki við íslamstrú en henni var sleppt úr fangelsi í gær. 24. júní 2014 13:51