Erlent

Dæmdur í 17 ára fangelsi

Freyr Bjarnason skrifar
Theodore Wafer óttaðist um líf sitt og skaut konuna til bana.
Theodore Wafer óttaðist um líf sitt og skaut konuna til bana. Fréttablaðið/AP
Karlmaður úr úthverfi borgarinnar Detroit í Bandaríkjunum hefur verið dæmdur í að minnsta kosti sautján ára fangelsi fyrir að skjóta til bana óvopnaða nítján ára konu á veröndinni sinni.

Renisha McBride hafði bankað upp á hjá Theodore Wafer klukkan hálf fimm um nóttina. Við réttarhöldin sagðist hann hafa óttast um líf sitt og því skotið hana.

McBride hafði klessukeyrt bíl sinn fyrr um nóttina og ætlaði hugsanlega að óska eftir hjálp. Hún var mjög drukkin.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×