Suarez lagði upp bæði mörkin í bikarsigri Kolbeinn Tumi Daðason skrifar 25. janúar 2014 12:00
Victor Moses og Daniel Sturridge skoruðu mörk Liverpool sem vann góðan 2-0 sigur á Bournemouth í fjórðu umferð enska bikarsins í knattspyrnu í dag. Heimamenn byrjuðu leikinn töluvert betur og sköpuðu sér nokkur hálffæri án þess að takast að láta reyna almennilega á Brad Jones í marki Liverpool. Það átti eftir að kosta þá um miðjan hálfleikinn þegar Liverpool komst yfir. Moses tók vel við sendingu Luis Suarez utan af kanti, lagði boltann fyrir sig rétt utan vítateigs og smellti honum neðst í markhornið. Leikmenn Bournemouth gáfust ekki upp og héldu áfram að ógna marki Liverpool en eftir sem áður hafði Jones lítið að gera í markinu. Liverpool leiddi 1-0 í hálfleik og eftir stundafjórðung í síðari hálfleik skoraði Sturridge. Englendingurinn fékk þá frábæra sendingu inn fyrir vörnina frá Luis Suarez og skoraði með hægri fæti. Sturridge og Suarez fengu báðir dauðafæri til að bæta við mörkum en niðurstaðan varð 2-0 sigur Liverpool. Arsenal og Liverpool eru nú komin í pottinn fyrir dráttinn í 5. umferð keppninnar á morgun. Fjölmargir leikir eru framundan í dag og má fylgjast með gangi mála í þeim öllum í Miðstöð Boltavaktarinnar.
Enski boltinn Mest lesið Hafnaði 34 milljónum: „Vil ekki styðja kerfi sem býr til fíkn og eyðileggur líf“ Sport Littler sjóðheitur en sá fjórði besti varð fyrir áfalli Sport Liverpool-skotmarkið ekki á förum í janúar Enski boltinn Syrgja átján ára fimleikakonu Sport Arnar Þór ráðinn til FIFA: „Himinlifandi að hafa fengið þetta starf“ Fótbolti Salah sakaður um dýfu: „Getum ekki keppt við Egypta og dómarana“ Fótbolti Haukur náði hundrað og hundrað fyrir EM Handbolti Skoraði og fékk gult fyrir að benda Fótbolti Írar ætli að fylgja eftir tillögu Heimis Fótbolti Watkins hélt ótrúlegri sigurgöngu Villa áfram Enski boltinn Fleiri fréttir Liverpool-skotmarkið ekki á förum í janúar Aldrei spilað þarna en sagði strax já „Viss um að ég myndi skora einn daginn“ Watkins hélt ótrúlegri sigurgöngu Villa áfram Schade og Jiménez sendu Brentford og Fulham í efri hlutann Arsenal aftur á toppinn Fyrsta mark Wirtz í þriðja sigrinum í röð Cherki aðalmaðurinn í sigri City Úlfarnir heiðruðu minningu Jota Andri Lucas frá í mánuð Sjáðu dönsku þrumuna sem færði United-mönnum öll þrjú stigin Segir að Arsenal stefni á sögulega fernu á þessu tímabili Amorim endaði viðtalið á gamansömum nótum „Við eigum heima í Evrópu“ Daninn skaut Man. United upp fyrir Liverpool Amorim segir strákinn í frystinum vera framtíðin hjá Man. United Martinez með fyrirliðabandið og báðir Fletcher-bræðurnir á bekknum Havertz gæti snúið aftur á næstu dögum Alfons og Willum sáu tvö rauð spjöld fara á loft Synir Diogo Jota leiða leikmenn út á Anfield Cunha vill skemmta og Howe treystir leikmönnum United horfir til Þýskalands eftir höfnun Semenyo Haaland stóðst vigtun eftir jólin Hápunktarnir hingað til í enska boltanum Goðsögn fallin frá Kærður af knattspyrnusambandinu Bestu jólamörkin: Drogba, Scholes eða Giroud? Van de Ven bað Isak afsökunar: „Vildi ekki meiða hann“ Hvers vegna heillast stórliðin svo af Semenyo? Stewart, Snoop og Modric í eina sæng Sjá meira