Enski boltinn

Bikarmeistararnir slógu út úrvalsdeildarlið | Úrslit dagsins

Kolbeinn Tumi Daðason skrifar
Wigan á bikarmeistaratitil að verja frá því í fyrra.
Wigan á bikarmeistaratitil að verja frá því í fyrra. Vísir/Getty
Úrvalsdeildarlið Crystal Palace féll úr enska bikarnum í dag gegn bikarmeisturum Wigan sem spila í b-deildinni.

Ben Watson og James McClean skoruðu mörk bláklæddra heimamanna en Aaron Wilbraham jafnaði metin í millitíðinni fyrir Crystal Palace. Wigan hefur gengið vel undanfarnar vikur undir stjórn Þjóðverjans Uwe Rösler.

Þá skoraði Hollendingurinn Wilfried Bony tvö mörk á þremur mínútum þegar Swansea lagði Birmingham á útivelli 2-1. Lee Novak hafði komið heimamönnum yfir snemma leiks.

Öll úrslit dagsins má sjá hér að neðan.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×