Enski boltinn

Tíu leikmenn Man. City kláruðu Hull | Sjáðu glæsimark Silva

Kompany rífur hér Jelavic niður. Fyrir það fékk hann rautt.
Kompany rífur hér Jelavic niður. Fyrir það fékk hann rautt. vísir/getty
Man. City skaust upp í annað sæti ensku úrvalsdeildarinnar í dag eru tíu leikmenn liðsins lönduðu sigri á útivelli gegn Hull City.

Leikurinn byrjaði með miklum látum og Man. City varð fyrir miklu áfalli er fyrirliði liðsins, Vincent Kompany, var rekinn af velli fyrir að rífa niður Nikica Jelavic sem var að sleppa í gegn.

Jelavic braut reyndar fyrst á Kompany og Belginn var því eðlilega brjálaður yfir því að vera rekinn af velli.

Leikmenn City létu það þó ekki slá sig út af laginu því skömmu síðar kom David Silva þeim yfir með gullmarki. Skot utan teigs sem söng í horninu. Algjörlega óverjandi.

Einum fleiri náði Hull ekki að skapa sér mikið af færum og City innsiglaði sigurinn með öðru marki frá Edin Dzeko undir lok leiksins.

City er nú sex stigum á eftir toppliði Chelsea og á tvo leiki inni.

Glæsimark Silva.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×