Darth Vader vill á þing í Úkraínu Samúel Karl Ólason skrifar 24. október 2014 13:33 Darth Vader er sífellt varinn af tveimur stormsveitarhermönnum. Vísir/AP
Einn frambjóðandi í þingkosningunum í Úkraínu þeysir um götur Kænugarðs á þaki bifreiðar, klæddur sem Darth Vader úr stjörnustríðsmyndunum. Vader reynir að heilla kjósendur með þá að lofa að gera Úkraínu að stórveldi á alheimsvísu. Hann leiðir Internet flokkinn í Úkraínu og segir hann vera háalvarlegan flokk. Svo alvarlega hefur maðurinn sem áður var þekktur sem Viktor Schevchenki, tekið þessu uppátæki sínu, að hann hefur löglega breytt nafni sínu í Darth Alekeyevich Vader, samkvæmt AP fréttaveitunni. Hans stærsta markmið er að tölvuvæða alla opinbera þjónustu. Flestum þykir ólíklegt að Internetflokkurinn, sem einnig er með Stepan Chewbacca á lista, muni ná manni á þing. Íbúar Kænugarðs taka Darth Vader þó alltaf vel þegar hann ferðast um götur borgarinnar í fullum skrúða. Til ferðanna notar Vader sendiferðabíl sem hann talar um sem þyrluna sína. Þrátt fyrir að Vader sé talsmaður meira gegnsæis þvertekur hann fyrir að sýna sitt rétta andlit. Fyrr á árinu fékk hann ekki að taka þátt í forsetakosningum í Úkraínu þar sem hann þurfti að sýna andlit sitt, til að fá að kjósa. Þawr að auki ætlar Darth Vader að brjóta á bak uppreisnina í austri og að endurheimta Krímskaga af Rússum. Aðspurður hvernig hann ætlaði að fara að því sagði Vader: „Við munum byggja herstöð í geimnum sem mun vernda Úkraínu.“Darth Vader ferðast um á „þyrlunni sinni“.Vísir/AP
Mest lesið „Það var alveg skýrt að það ætti bara að drepa þetta mót hjá okkur“ Innlent Fjölskyldan í sárum og biður foreldra um að fylgjast með netnotkun barna Innlent Starmer segir af sér Erlent Leidd út í járnum eftir lögregluaðgerð í Skipholti Innlent Telur að það eigi að gera bíla upptæka vegna utanvegaaksturs Innlent „Við náðum í hnakkadrambið á þeim“ Innlent Ferðalangar utan EES ekki tryggðir vegna veikinda eða slysa Innlent Ekki lengur flestir sem útskrifast af náttúrufæðibraut Innlent Lést í umferðarslysi við Vík í Mýrdal Innlent Segir þörf á fræðslu um kyrkingartak í grunnskólum Innlent Fleiri fréttir Burnham vill taka við af Starmer Alan Greenspan er látinn Vandræðagangur í breskum stjórnmálum allt frá Brexit Starmer segir af sér Fundu nærri þrjú tonn af kókaíni í neðanjarðarbyrgi í Ástralíu Starmer muni segja af sér í dag Fyrstu lotu friðarviðræðna Bandaríkjanna og Íran lokið Leggja bönn á áfengisneyslu vegna hitabylgjunnar „Konur eru svangari, fátækari og örvæntingarfyllri en nokkru sinni fyrr“ Sagður ætla að tilkynna afsögn á morgun Vance þreifar fyrir sér í Sviss Níu í lífshættu og einn látinn eftir lestarslys í Englandi Segjast hafa lokað Hormússundi á ný Meloni segir Trump skrökva upp á sig Witkoff stefnir til Sviss Þungt haldinn eftir að kýr réðst á tvo Ráðherrar krefja Starmer um afsögn Ísrael semur um vopnahlé við Hezbollah Konungur Norðursins sækir að Starmer Hættu skyndilega við viðræðurnar í Sviss Íranir segjast ætla að taka gjald af siglingum um sundið „Það verða engir konungar“ Telja dráp á rússneskum teiknara „pólitískt launmorð“ Ein stærsta drónaárásin á Rússland frá upphafi stríðsins Leghálskrabbameini nánast útrýmt í Bretlandi eftir bólusetningarátak Þetta er í samkomulagi Trumps við Írani Fuglaflensan stráfelldi kópa á suðurskautinu Trump undirritaði samkomulag við Írani Spá allt að fjörutíu stiga hita Rex Heuermann fær lífstíðardóm Sjá meira