Jóhann Berg og félagar stigalausir heim frá Craven Cottage Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 24. október 2014 20:42 Hugo Rodallega fagnar öðru marka sinna í kvöld. Vísir/Getty
Jóhann Berg Guðmundsson og félagar fóru stigalausir heim frá Craven Cottage í kvöld eftir 3-0 tap á móti Fulham í Lundúnaslag í ensku b-deildinni í fótbolta. Fulham-lið eru allt að koma til eftir skelfilega byrjun en liðið var í fallsæti fyrir leikinn í kvöld á meðan Charlton-liðið var fimmtán sætum ofar í töflunni. Jóhann Berg kom inná sem varamaður þegar rúmur hálftími var eftir og staðan var búin að vera 2-0 fyrir Fulham í rúmar 45 mínútur. Scott Parker og Hugo Rodallega skoruðu fyrstu tvö mörk Fulham-liðsins á fyrstu tólf mínútum leiksins og Rodallega bætti síðan við sínu öðru marki í lokin. Scott Parker kom Fulham í 1-0 strax á sjöttu mínútu eftir að hafa byrjað sóknina sjálfur með því að ná boltanum eftir lélega sendingu Charlton-manna. Hugo Rodallega bætti við öðru marki aðeins sex mínútum síðar þegar hann fylgdi á eftir skoti Ross McCormack. Hugo Rodallega innsiglaði síðan sigurinn á 89. mínútu og er þar með kominn með fimm mörk á tímabilinu. Kit Symons hefur náð að kveikja í Fulham-liðinu síðan að hann tók við af Þjóðverjanum Felix Magath en þetta var fjórði sigur liðsins í síðustu sex leikjum.
Enski boltinn Mest lesið Boltinn í vír og Norðmenn segja algjört hneyksli að markið skyldi standa Fótbolti Hökta áfram og mæta Englandi í undanúrslitum Fótbolti Hissa á útspili Haalands Fótbolti Metið kolféll í Laugavegshlaupinu Sport Bellingham sendi sára Norðmenn heim Fótbolti Hansen leikur í mynd um einelti eftir að hafa sjálfur þurft að þola það Handbolti „Ástæðan fyrir því að það er talað um að hún sýni ekki nóg“ Íslenski boltinn Maður dagsins á HM: Öldungar á rassinum og nærbuxur Kim Kardashian Fótbolti Felldi tár og sendi fingurkoss til himna Sport Héldu flugi eftir sigurinn á Íslandi og drottna yfir EM U19 Fótbolti Fleiri fréttir Ken Bates látinn Fyrrverandi stjarna í enska boltanum handtekin Önnur risastór breyting á þeim sem stýra Liverpool Manchester City kaupir efnilegan markvörð Stjarna úr ensku úrvalsdeildinni keyrði niður konu Newcastle yngir upp á sumri breytinga Arsenal fær Meslier frá Leeds Amorim viðurkenndi mistök og bað stuðningsmenn United afsökunar Fyrsti leikurinn er auðvitað á móti Xabi Alonso Haaland orðinn stærri en Manchester City Ein stærstu félagaskiptin í sögu kvennaknattspyrnunnar Bruno Guimaraes tilkynnir Newcastle að hann vilji fara til Arsenal Manchester United kaupir annan Brassa á miðjuna Arbeloa nýr stjóri Fulham og vill taka leikmenn með sér frá Real Madrid Hildur til Newcastle Sleit krossband í sigrinum gegn Bandaríkjunum Newcastle ætlar að nota Tonali-peningana til að kaupa eina af ungu stjörnum HM Kaupa George frá Chelsea Til Tottenham fyrir sautján milljarða Fimmti stjóri Forest á einu ári Skera niður hjá stelpunum Hvað er að gerast hjá Manchester United? Stórhuga Spursarar að kaupa Tonali á metverð Pereira furðu lostinn að hafa verið rekinn frá Forest Þjálfarinn kallaði hana „geðsjúkling“ og stundaði sálfræðileiki við hana Verður sá dýrasti í sögu Tottenham Klopp reiður: „Ef þetta er brot þá hefði Arsenal ekki orðið Englandsmeistari“ Chelsea með harðorða yfirlýsingu um nýjan stjóra Man. City Manchester City staðfestir loksins Maresca sem stjóra Newcastle með augastað á efnilegum miðjumanni Freiburg Sjá meira