Naismith gefur atvinnulausum miða á völlinn Guðmundur Marinó Ingvarsson skrifar 4. ágúst 2014 20:00 Naismith sinnir ungum stuðningsmönnum vísir/getty
Skoski landsliðsmaðurinn Steven Naismith hjá enska úrvalsdeildarliðinu Everton hefur keypt miða á heimaleiki Everton í vetur til að gefa atvinnulausum víðsvegar um Liverpool. „Ég kem frá Ayrshire í Vestur-Skotlandi og hef búið drjúgan hluta ævi minnar í Glasgow, borg sem hefur þurft að þola mikið atvinnuleysi á ýmsum tímum,“ sagði Naismith sem kom frá Rangers árið 2012. „Sömu sögu er að segja frá Liverpool og ég er meðvitaður um það. Það eru margir atvinnulausir í Liverpool sem eiga erfitt með að fá vinnu og hafa ekki efni á miðum á völlinn. Þetta er það minnsta sem ég get gert til að hjálpa fólki í þessari stöðu til að eiga góða stund á einum af leikjunum okkar. Vonandi get ég glatt marga með þessu,“ sagði sóknarmaðurinn. Naismith hefur fengið atvinnuleysisskrifstofur í Liverpool-borg til að aðstoða sig við að gefa miðana. Naismith hefur látið mikið að sér kveða og unnið sjálfboðavinnu í skýlum heimilislausra í Liverpool og Glasgow. Hann setti einnig á laggirnar verkefni í Glasgow sem vinnur að því að hjálpa slösuðu þjónustufólki að finna vinnu og er sendiherra fyrir lesblindu í Skotlandi. „Ég er mjög þakklátur fyrir þau tækifæri og þann lífsstíl sem starf mitt sem fótboltamaður hefur veitt mér og fjölskyldu minni. Fótboltinn hefur komið mér í stöðu þar sem ég get látið gott af mér leiða í samfélaginu á lítinn hátt,“ sagði Skotinn með stóra hjartað.
Enski boltinn Mest lesið Uppgjörið: Ísland - Þýskaland 31-33 | Þjóðverjar áttu alltaf svar Handbolti Uppgjörið: Thun - Víkingur 3-0 | Töturlegt í Thun Fótbolti Fylgist stoltur með litla bróður á EM: „Verið draumur hans í mjög langan tíma“ Handbolti Vantraust UEFA á Infantino stendur sem og sniðganga Fótbolti Fótboltamaður varð fyrir eldingu Fótbolti Líkti frammistöðu KA við tíma sinn í Mjólkursamsölunni Íslenski boltinn Uppgjörið: Valur-Nordsjælland 0-2 | Róðurinn verður þungur í Danmörku Fótbolti Kokhraustur eftir neyðarfund Fótbolti Leikmannasamtökin segja um djúpstæða misbeitingu á valdi forsetans að ræða Fótbolti Fann fyndna lausn á fljótfæru húðflúri sínu Enski boltinn Fleiri fréttir Segir að nýi maðurinn í brúnni hjá Newcastle sé „rokkstjarna“ NBA-goðsögn fjárfestir í enska fótboltafélaginu Ipswich Town Barcelona blandar sér í baráttuna um Rodri Sauð á leikmönnum Arsenal eftir tapið fyrir Betis Fann fyndna lausn á fljótfæru húðflúri sínu Gamli West Ham-leikmaðurinn allt í öllu á sigri á Arsenal Jaissle ráðinn aðalþjálfari Newcastle Sagði það „augljósa“ ákvörðun að velja Man City frekar en Arsenal Konan sem á að rífa upp gengi Manchester United Chelsea tapaði fyrsta leik Mudryks í tvö ár Umdeildasti maður sumarsins orðaður við Tottenham Liverpool vill að minnsta kosti tvo leikmenn PSG United ekki lengi þjálfaralaust Mudryk fær séns til að sanna sig á ný „Þetta er búið, við erum góðir“ Dýrust í sögu ensku deildarinnar Arsenal nálgast kaup á Guimaraes Metfjöldi nýrra þjálfara Henderson genginn í raðir Chelsea Chelsea kaupir strákinn sem Bellingham sló og skoraði á móti Íslandi Sjáðu mörkin og kennslustundina sem Liverpool fékk frá Leeds í seinni Newcastle hafnar tilboði Arsenal í Guimaraes Mátti ekki klæða sig við hlið hinna leikmanna Man. Utd. Þjálfari Man Utd hættir mánuði fyrir mót Finnst Maresca vera fullkominn fyrir City Hló er hann var spurður út í Vinícius Júnior „Versta ákvörðun sem ég hef tekið að styðja Tottenham“ Fyrsta mark Tonali í sigri á Chelsea Redknapp: Tottenham er að hegða sér eins og stórklúbbur í sumar Newcastle borgar meira en einn og hálfan milljarð til að fá Jaissle Sjá meira