Langþráður sigur hjá lærisveinum Laudrup - úrslit kvöldsins í enska Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 28. janúar 2014 19:30 Jonjo Shelvey fagnar marki sínu í kvöld. Vísir/NordicPhotos/Getty
Lærisveinar Danans Michael Laudrup unnu langþráðan sigur í ensku úrvalsdeildinni í kvöld, Liverpool fór illa með nágranna sína, Juan Mata byrjaði vel með Manchester United og Arsenal tapaði stigum á útivelli á móti Southampton.Manchester United vann 2-0 sigur á Cardiff City í fyrsta leik Spánverjans Juan Mata með United-liðinu. Ole Gunnar Solskjær þurfti því að sætta sig við tap í endurkomu sinni á Old Trafford. United-liðið eyddi metupphæð í Mata í vikunni og hann átti fína innkomu í liðið eins og Robin Van Persie sem skoraði sínum fyrsta leik síðan í byrjun desember.Manchester City getur náð toppsætinu á morgun eftir að Arsenal náði aðeins einu stigi í heimsókn sinni á St. Mary's leikvanginn í Southampton. Bæði liðin komust yfir í leiknum en leikurinn endaði með 2-2 janftefli.Liverpool skoraði þrjú mörk í fyrri hálfleik og vann öruggan 4-0 sigur á Everton á Anfield í Merseyside-slagnum. Daniel Sturridge skoraði tvö mörk á tveimur mínútum í fyrri hálfleiknum en hin mörkin skoruðu fyrirliðinn Steven Gerrard og hinn sjóðheiti Luis Suárez.Swansea vann langþráðan sigur þegar Fulham kom í heimsókn. Swansea-liðið hafði ekki unnið í deildinni í átta leikjum eða síðan í byrjun desember. Jonjo Shelvey og Chico Flores skoruðu mörkin í seinni hálfleiknum.Crystal Palace heldur áfram að snúa við blaðinu undir stjórn Tony Pulis og liðið vann enn einn 1-0 sigurinn í kvöld. Jason Puncheon skoraði eina markið í gríðarlega mikilvægum sigri á Hull en sigurinn skilaði Palace-liðinu upp í 14. sæti deildarinnar.Úrslit og markaskorarar í ensku úrvalsdeildinni í kvöld:Manchester United - Cardiff 2-0 1-0 Robin van Persie (6.), 2-0 Ashley Young (59.)Norwich - Newcastle 0-0Southampton - Arsenal 2-2 1-0 Jose Fonte (21.), 1-1 Olivier Giroud (48.), 1-2 Santi Cazorla (52.), 2-2 Adam Lallana (54.).Swansea - Fulham 2-0 1-0 Jonjo Shelvey (61.), 2-0 Chico Flores (75.)Crystal Palace - Hull 1-0 1-0 Jason Puncheon (16.)Liverpool - Everton 4-0 1-0 Steven Gerrard (21.), 2-0 Daniel Sturridge (33.), 3-0 Daniel Sturridge (35.), 4-0 Luis Suárez (50.).
Enski boltinn Mest lesið Syrgja átján ára fimleikakonu Sport Arnar Þór ráðinn til FIFA: „Himinlifandi að hafa fengið þetta starf“ Fótbolti Fyrsta mark Wirtz í þriðja sigrinum í röð Enski boltinn Írar ætli að fylgja eftir tillögu Heimis Fótbolti Watkins hélt ótrúlegri sigurgöngu Villa áfram Enski boltinn Arsenal aftur á toppinn Enski boltinn Gerir grín að klæðaburði liðsfélaga síns Körfubolti Salah sakaður um dýfu: „Getum ekki keppt við Egypta og dómarana“ Fótbolti Hafnaði 34 milljónum: „Vil ekki styðja kerfi sem býr til fíkn og eyðileggur líf“ Sport Cherki aðalmaðurinn í sigri City Enski boltinn Fleiri fréttir Aldrei spilað þarna en sagði strax já „Viss um að ég myndi skora einn daginn“ Watkins hélt ótrúlegri sigurgöngu Villa áfram Schade og Jiménez sendu Brentford og Fulham í efri hlutann Arsenal aftur á toppinn Fyrsta mark Wirtz í þriðja sigrinum í röð Cherki aðalmaðurinn í sigri City Úlfarnir heiðruðu minningu Jota Andri Lucas frá í mánuð Sjáðu dönsku þrumuna sem færði United-mönnum öll þrjú stigin Segir að Arsenal stefni á sögulega fernu á þessu tímabili Amorim endaði viðtalið á gamansömum nótum „Við eigum heima í Evrópu“ Daninn skaut Man. United upp fyrir Liverpool Amorim segir strákinn í frystinum vera framtíðin hjá Man. United Martinez með fyrirliðabandið og báðir Fletcher-bræðurnir á bekknum Havertz gæti snúið aftur á næstu dögum Alfons og Willum sáu tvö rauð spjöld fara á loft Synir Diogo Jota leiða leikmenn út á Anfield Cunha vill skemmta og Howe treystir leikmönnum United horfir til Þýskalands eftir höfnun Semenyo Haaland stóðst vigtun eftir jólin Hápunktarnir hingað til í enska boltanum Goðsögn fallin frá Kærður af knattspyrnusambandinu Bestu jólamörkin: Drogba, Scholes eða Giroud? Van de Ven bað Isak afsökunar: „Vildi ekki meiða hann“ Hvers vegna heillast stórliðin svo af Semenyo? Stewart, Snoop og Modric í eina sæng Vill ekki segja hversu lengi Bruno er frá Sjá meira