Enski boltinn

Arsenal tapaði stigum á St. Mary's

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Vísir/NordicPhotos/Getty
Manchester City getur náð toppsætinu á morgun eftir að Arsenal náði aðeins einu stigi í heimsókn sinni á St. Mary's leikvanginn í Southampton. Bæði liðin komust yfir í leiknum en leikurinn endaði með 2-2 jafntefli.

José Fonte kom Southampton í 1-0 á 21. mínútu og Sam Gallagher fékk frábært færi til að koma Southampton í 2-0 í lok fyrri hálfleiks en Laurent Koscielny bjargaði vel.

Arsenal snéri við leiknum með mörkum Olivier Giroud og Santi Cazorla á fyrstu sjö mínútum í seinni hálfleik en það tók Adam Lallana aðeins tvær mínútur að jafna metin í 2-2.

Arsenal-maðurinn Mesut Özil átti skot í slá á 65. mínútu en fleiri mörk litu ekki dagsins ljóst. Mathieu Flamini fékk rauða spjaldið tíu mínútum fyrir leikslok en tíu leikmönnum Arsenal tókst að bjarga stigi.










Fleiri fréttir

Sjá meira


×