Brendan Rodgers: Ég veit vel að ég þarf að fara vinna leiki Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 24. nóvember 2014 07:30 Brendan Rodgers, knattspyrnustjóri Liverpool. Vísir/Getty
Brendan Rodgers, knattspyrnustjóri Liverpool, tók fulla ábyrgð á tapi liðsins á móti Crystal Palace í ensku úrvalsdeildinni í gær en Liverpool, sem komst í 1-0 í leiknum, tapaði leiknum 3-1 og er þar með búið að tapa þremur deildarleikjum í röð. „Við erum mjög vonsviknir með bæði frammistöðuna og úrslitin og þetta er eitthvað sem ég sem knattspyrnustjóri verð að taka fulla ábyrgð á," sagði Brendan Rodgers við BBC. Liverpool hefur aðeins unnið einn af síðustu fimm deildarleikjum og er nú 18 stigum á eftir toppliði Chelsea. Framundan er leikur á móti Ludogorets Razgrad í Meistaradeildinni í Búlgaríu á miðvikudaginn. „Við verðum að finna lausn fljótt því þetta er mjög svekkjandi og við getum bara kennt okkur sjálfum um. Við þurftum að gera breytingar í sumar og erum nánast að byggja upp lið en við verðum samt að gera betur en þetta," sagði Rodgers. „Liðið hefur lent á verri kafla undir minni stjórn og eina liðin út úr þessu er að vinna að því saman. Við verðum að bæta okkur og það mjög fljótt því það er nóg af leikjum framundan," sagði Rodgers. „Ég er ekki það hrokafullur að halda það að ég haldi starfinu sama hvað gerist. Ég verð að fara að vinna leiki. Ég er í góðu sambandi við eigendurna. Við erum hreinskilnir og opnir þegar þegar við tölum saman. Við verðum samt að fara ná úrslitum og standa okkur betur. Ég vil gera mitt besta og þarf núna að leggja enn meira á mig," sagði Rodgers.
Enski boltinn Mest lesið Glódís fagnaði titlunum í þýskum þjóðbúningi á troðfullu torgi Fótbolti Átti Henderson að fá rautt spjald? Enski boltinn Leik lokið: Fram - Vestri 1-0 | Frammarar stöðvuðu sigurgöngu Vestra Íslenski boltinn „Ég var ekki sáttur með sjálfan mig“ Körfubolti Löggan óskaði Hildigunni til hamingju Handbolti Uppgjörið: ÍBV - KA 0-0 | Ekkert samba í sólinni Íslenski boltinn Stól kastað í höfuð markmanns Aberdeen Fótbolti Dagskráin í dag: Tryggir Tindastóll titilinn? Sport „Æfingu morgundagsins er aflýst“ Enski boltinn Scheffler tók forystuna fyrir lokadaginn Golf Fleiri fréttir Í beinni: Arsenal - Newcastle | Newcastle getur komist upp fyrir Arsenal Chelsea vann á Wembley og fullkomnaði þrennuna Stórkostleg stemning og sætur sigur í síðasta leiknum í Guttagarði Átti Henderson að fá rautt spjald? „Æfingu morgundagsins er aflýst“ Crystal Palace bikarmeistari í fyrsta sinn „Talar ekki um eggið fyrr en hænan er búin að verpa“ Salah gagnrýndi stuðningsmenn Liverpool Eitt töfrabragð dugði gegn United í dýrmætum sigri Villa ekki í vandræðum með Spurs og stefnir aftur í Meistaradeildina Vonast til að Man United sé tilbúið að selja sig á tæplega sjö milljarða króna Dóttir Liams Gallagher á von á barni með guðsyni Guðna Bergs Þrír frá Liverpool og tveir frá Forest tilnefndir sem leikmaður ársins Maður Serenu kaupir hlut í Chelsea Awoniyi vaknaður eftir lífshættulegar en vel heppnaðar aðgerðir Segist ekki ætla að hætta en viðurkennir að hann gæti verið rekinn Kulusevski missir af úrslitaleiknum gegn Man United Sunderland sló áhorfendamet á leiðinni í úrslitaleikinn Awoniyi sofandi á gjörgæslu og gengst undir aðra aðgerð í dag Félagið neitar að borga svo Amorim opnar veskið Kvennalið Everton mun spila á Goodison sem verður ekki rifinn Man City sagt hafa lagt fram „mega“ tilboð í Wirtz Amorim gefur í skyn að hann fari frá Man Utd breytist kúltúrinn ekki Leiður að heyra púað á vin sinn: „Getur ekki sagt fólki hvernig því á að líða“ Eigandi Nott. Forest reifst við Nuno þjálfara inn á vellinum Pirruð Man City stjarna: „Þeir reyndu ekki einu sinni að vinna“ Arsenal kom til baka á móti meisturunum á Anfield Newcastle upp í þriðja sætið eftir sigur á Chelsea Enn eitt tapið á Old Trafford Palace fór létt með Tottenham sem hvíldi marga Sjá meira