Merkel hyllir fall Berlínarmúrsins Atli Ísleifsson skrifar 9. nóvember 2014 16:35 Angela Merkel Þýskalandskanslari flutti ávarp fyrr í dag. Vísir/AFP
Fall Berlínarmúrsins fyrir aldarfjórðungi hefur kennt heimsbyggðinni að draumar geti ræst og að ekkert þurfi að viðhaldast óbreytt. Þetta sagði Angela Merkel, kanslari Þýskalands, þegar hún ávarpaði mannfjölda til að minnast tímamótanna fyrr í dag. Merkel sagði skilaboðin til þeirra í löndum þar sem brotið sé á réttindum vera þau að hlutir og aðstæður gætu skánað. Fyrr í dag sótti kanslarinn athöfn þar sem fórnarlamba stjórnar Austur-Þýskalands var minnst. Berlínarmúrinn var reistur árið 1961 til að koma í veg fyrir að fólk flýði Austur-Þýskaland til vestursins. Múrinn féll á þessum degi árið 1989 og varð ein helsta táknmynd endaloka kalda stríðsins. Síðar í dag verður sjö þúsund hvítum blöðrum sleppt en blöðrurnar eru nú á 3,6 metra háum staurum sem tákna hæð múrsins. Í frétt BBC kemur fram að tónleikar og „borgaralegur fögnuður“ hafi verið haldnir við Brandenborgarhlið í dag. Merkel, sem ólst sjálf upp í Austur-Þýskalandi, kom fyrr í dag fyrir rósum í einum af þeim hlutum múrsins sem enn standa. Merkel opnaði nýja upplýsingamiðstöð um múrinn og sagði við það tilefni að auðvelt væri að gleyma því sem gerst hafði, en nauðsynlegt væri að muna. „Við getum breytt hlutum til hins betra. Þetta eru skilaboð til Úkraínu, Íraks og annarra staða þar sem mannréttindum er ógnað.“
Mest lesið Kosningaspá Vísis: Líkur Alberts aukast en Bjarnveigar dvína Innlent Ítreka yfirráð yfir Falklandseyjum eftir hótun Bandaríkjamanna Erlent Fjölgar í hópi sakborninga og ráðist í húsleit Innlent Handtekinn eftir að hafa valdið umferðarslysi Innlent Netanjahú greindist með krabbamein Erlent Hlýtt í dag en kuldi í kortunum Veður Bilið á milli turnanna breikkar Innlent Segja engan fund á dagskrá Erlent Vesturlönd tali opinskátt um fyrirætlað stríð við Rússland Erlent „Viðreisn er í algjörri lykilstöðu“ Innlent Fleiri fréttir Gasabúar kjósa í fyrsta sinn í tuttugu ár Segja engan fund á dagskrá Ítreka yfirráð yfir Falklandseyjum eftir hótun Bandaríkjamanna Netanjahú greindist með krabbamein Sendimenn Trump fara á fund utanríkisráðherra Írans á morgun Vesturlönd tali opinskátt um fyrirætlað stríð við Rússland Ræða ekki loftslagsmál á umhverfisfundi til að friðþægja Bandaríkjastjórn Sækir aftur um reynslulausn Handtaka hermann sem veðjaði á að Maduro yrði tekinn Sefur í kjallaranum þar sem Heuermann myrti og sundurlimaði fórnarlömb sín Lánið í höfn og Harry veitir Trump óumbeðin ráð Segir vopnahlé framlengt um þrjár vikur Fyrirtæki MrBeast sakað um að afsaka kynferðislega áreitni Skjóta á alla báta sem leggja tundurdufl Með lista yfir góða og slæma bandamenn Fimm í lífshættu eftir lestarslysið Fjórir í lífshættu eftir lestarslys í Danmörku Vélmennið Ace sigrar atvinnumenn í borðtennis Tóku tvö skip og réðust á það þriðja Óvænt jafntefli í kjördæmastríðinu Sækja mannréttindasamtök til saka vegna njósna um öfgamenn Vilja senda afganska bandamenn og fjölskyldur til Kongó Hætta að styrkja Feneyjartvíæringinn vegna þátttöku Rússa Vilja tæpar tvö hundruð billjónir til varnarmála Allir Bretar fæddir eftir 2008 í lífstíðarbann frá tóbaki Framlengir vopnahléið og herkvína Þriðji þingmaðurinn segir af sér á viku Viðræður enn á ís vegna „óásættanlegrar“ hegðunar Ein af hinstu óskum Frans páfa enn óuppfyllt „Jæja, herra Heuermann. Mér skilst að þú hyggist játa fyrir mér þessi morð?“ Sjá meira