Erlent

Léleg afmælisgjöf reyndist sú besta

Kolbeinn Tumi Daðason skrifar
Deisi Ocampo með vinningsseðilinn.
Deisi Ocampo með vinningsseðilinn.
Deisi Ocampo, bandarísk kona búsett í Chicago, átti ekki von á því að fagna nítján ára afmælisdegi sínum sem milljónamæringur.

ABCNews greina frá því að faðir Ocampo hafi rétt henni tvo lottómiða í tilefni afmælis hennar og sagt: „Til hamingju með afmælið“. Með einum lottóútdrætti varð hún rúmlega 480 milljónum krónum ríkari.

„Þetta er besta afmælisgjöf sem ég hef fengið,“ sagði Ocampo. Henni var afhent ávísun jafnvirði 480 milljón króna á bensínstöð í norðvesturhluta Chicago á föstudag. Lottómiðarnir tveir kostuðu um 2500 krónur samanlagt.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×