Enski boltinn

Balotelli fann fyrir meiðslum í upphitun en fór samt inná og skoraði

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Mario Balotelli fagnar marki sínu.
Mario Balotelli fagnar marki sínu. Vísir/Getty
Mario Balotelli skoraði langþráð mark fyrir Liverpool í gærkvöldi í 2-1 endurkomusigri liðsins á Swansea í sextán liða úrslitum enska deildarbikarsins en um tíma leit út fyrir að kappinn væri ekkert á leiðinni inn á völlinn.

Balotelli hafði ekki skorað fyrir Liverpool síðan 16. september (9 leikir) og var meðal annars án marks í öllum sjö leikjum sínum í ensku úrvalsdeildinni. Hann skoraði hinsvegar aðeins sjö mínútum eftir að hafa komið inná sem varamaður eftir að hafa stýrt inn fyrirgjöf Fabio Borini.

Colin Pascoe aðstoðarmaður Brendan Rodgers sagði frá því eftir leikinn að Mario Balotelli hafi kvartað undan meiðslum í hné í upphitun.  

„Hann festi takkana eitthvað í grasinu og við sendum hann til sjúkraþjálfara til að skoða hvort allt væri í lagi. Mario fann einhver óþægindi í hnénu en sjúkraþjálfarinn sá ekkert að honum og því fór hann inná," sagði Colin Pascoe.

Mario Balotelli var stuttorður á twitter-síðu sinni eftir leik en þetta eina orð sagði líka alla söguna.  "Finally!"




Fleiri fréttir

Sjá meira


×