Lífið

Kennir sjálfum sér um andlát Peaches

Lilja Katrín Gunnarsdóttir skrifar
Feðginin árið 2003.
Feðginin árið 2003. vísir/getty
Tónlistarmaðurinn Sir Bob Geldof segist þjást af miklu samviskubiti yfir andláti dóttur sinnar, Peaches en hún lést úr of stórum skammti eiturlyfja fyrr á þessu ári.

„Maður kennir sjálfum sér um. Ég er faðir sem ber ábyrgð og brást greinilega,“ segir Bob í viðtali við ITV News í Bretlandi.

Peaches var fyrirsæta og sjónvarpskona og var aðeins 25 ára þegar hún lést í apríl. Hún hafði glímt við fíkniefnavanda um langt skeið og byrjaði að nota heróín aftur í febrúar á þessu ári. 

„Hún var mjög klár. Hún vissi hvernig lífið ætti að vera og, Guð blessi hana, hún reyndi að lifa því þannig,“ bætir Bob við. Hann segir jafnframt að það hafi haft slæm áhrif á Peaches og systkini hennar að vera sífellt minnt á að móðir þeirra, Paula Yates, hafi látist úr of stórum skammti af heróíni árið 2000.

Tónlistarmaðurinn segir að það hafi góð áhrif á sig að koma fram með hljómsveit sinni Boomtown Rats.

„Það er mjög hreinsandi. Það tæmir huga minn í öllum skilningi þess orð. Ég gleymi mér á sviði en það er stutt hvíld.“

Peaches skildi eftir sig eiginmann og tvö börn.vísir/getty

Tengdar fréttir

Peaches Geldof látin

Dóttir tónlistarmannsins Bob Geldof og Paula Yates látin, 25 ára að aldri.

Seinustu myndir Peaches

Seinasta myndin sem Peaches Geldof deildi á samfélagsmiðlunum Twitter var mynd af henni og móður hennar.

Öskunni dreift í Kent

Ösku Peaches Geldof verður dreift á sama stað og ösku móður hennar var dreift árið 2000.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.