Ákvörðun um arftaka van Rompuy frestað fram á haust? Atli Ísleifsson skrifar 14. júlí 2014 11:48 Helle Thorning-Schmidt, forsætisráðherra Danmerkur, er talin líkleg til að taka við starfi forseta leiðtogaráðsins. Vísir/AFP
Leiðtogar aðildarríkja ESB munu mögulega einungis taka ákvörðun um arftaka Catherine Ashton, utanríkis- og öryggismálastjóra ESB, á fundi sínum á miðvikudaginn. Hugsanlegt er að ákvörðun um arftaka Herman van Rompuy, forseta leiðtogaráðsins, verði ekki tekin fyrr en í haust.EU Observer hefur eftir heimildarmanni að ef mögulegt sé að ná samstöðu um báðar stöðurnar væri rétt að klára málið. „Ef ekki, verður einungis tekin ákvörðun um utanríkis- og öryggismálastjórann.“ Van Rompuy og Ashton munu bæði láta af embættum sínum í nóvember, en samkvæmt Lissabon-sáttmálans geta menn einungis gegnt embættinu tvö tveggja og hálfs árs skipunartímabil. Evrópuþingið hefur einnig aðkomu að skipun utanríkis- og öryggismálastjórans og þarf sá sem fyrir valinu verður að hljóta samþykki þingsins. Ástæður mögulegrar frestunar ákvörðunar um arftaka van Rompuy er ósætti meðal sósíalískra leiðtoga aðildarríkjanna. Francois Hollande Frakklandsforseti vill síður sjá Helle Thorning-Schmidt, forsætisráðherra Danmerkur, í starf forseta leiðtogaráðsins, en hún er nú talin líklegust til að taka við stöðunni. Leiðtogar aðildarríkjanna þurfa að ná samkomulagi um hverjir tilnefndir verða í stöðurnar. Er ljóst að maður af hægri væng stjórnmálanna mun taka við annarri stöðunni en maður af vinstri vængnum hinni. Thorning-Schmidt, sem er formaður danska Jafnaðarmannaflokksins, er álitin vera nægilega nálægt miðjunni á hinum pólitíska ás til að Angela Merkel Þýskalandskanslari og David Cameron, forsætisráðherra Bretlands, geti sætt sig við að hún gegni embættinu næstu árin. Federica Mogherini, utanríkisráðherra Ítalíu, er nú talin líklegust til að hreppa stöðu utanríkis- og öryggismálastjórans. Enda Kenny, forsætisráðherra Írlands, Valdis Dombrovskis, fyrrum forsætisráðherra Lettlands og Andrus Ansip, fyrrum forsætisráðherra Eistlands, eru einnig taldir koma til greina.
Mest lesið Sögðu mjólkurfernu kosta 380 krónur en eyddu myndskeiðinu Innlent Um 7.000 manns taldir smitaðir af svæsinni niðurgangspest Erlent Hundur sem átti að aflífa fluttur úr landi Innlent Leigubílstjóri stunginn af farþega Innlent Ólafur hjá Morgunblaðinu kærður til siðanefndar BÍ Innlent Tengivagn valt á Vesturlandsvegi Innlent „Er löggjafarvaldið sofandi á verðinum?“ Innlent Hafi sýnt stjúpdóttur sinni klám til að réttlæta brot sín Innlent „Svolítið súrt þegar við erum búin að vera að byggja upp þarna flotta aðstöðu“ Innlent Íbúafjöldinn fimmfaldast í blíðunni Innlent Fleiri fréttir Tvö þúsund smitaðir og rúmlega sjö hundruð látnir Sex létust í árásum Rússa í nótt Fyrrum forsætisráðherra Noregs vill þjóðaratkvæði um aðildarviðræður Segja gervigreindina hafa valið þá sem sagt var upp og saka Meta um mismunun Carroll fær loksins miskabæturnar frá Trump Þurfa að hafa lokið herskyldu til að fá vernd innan ESB Gus sleginn á 6,3 milljarða króna Eldri unglingum bannað að fara á samfélagsmiðla á nóttunni Um 7.000 manns taldir smitaðir af svæsinni niðurgangspest Trump hótar árásum á orkuver og Íranir að stöðva alla olíuflutninga Sex létust í eldsvoða í Brussel Hættur við innheimtu tolls á Hormússundi Morðið á Ann Widdecombe var „markviss árás“ Vinna ekki með Bandaríkjamönnum af þjóðaröryggisástæðum Telja sjötugan Þjóðverja hafa byrlað og nauðgað fjölda kvenna Forsætisráðherra Úkraínu lætur af embætti Danska leyniþjónustan ræður mörghundruð nethermenn Mette-Marit útskrifuð af sjúkrahúsi Dómari ógildir sátt Trump og skattayfirvalda Hélt um fætur eiginmannsins meðan hann sogaðist úr glugga í háloftunum Þingið samþykkir stjórnarskrárviðauka til að koma forsetanum frá Boðað til þingkosninga í Ísrael þann 27. október Trump boðar gjaldtöku á Hormússundi Blása lífi í glæður Falklandseyjadeilunnar fyrir stórleikinn Rannsaka morð Widdecombe sem hryðjuverk ESB boðar aldurstakmörk á samfélagsmiðlum Segja 2.700 hafa látist vegna hitabylgju Sænskur Evrópuþingmaður kærir danskan kollega til lögreglu McConnell birtir mynd af sér á spítala Íranir og Bandaríkjamenn halda árásunum áfram Sjá meira