Enski boltinn

Falcao enn í óvissu

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Vísir/Getty
Sóknarmaðurinn Radamel Falcao er ekki viss um hvort hann verði klár fyrir fyrsta leik kólumbíska landsliðsins á HM í Brasilíu.

Falcao sleit krossband í hné í janúar og hefur verið í stífri endurhæfingu síðan þá. Hann var valinn í 30 manna HM-hóp Kólumbíu en óvíst er hvort hann verði í 23 manna lokahópnum sem verður tilkynntur þann 2. júní.

„Ég veit ekki hvort ég verði tilbúinn,“ sagði Falcao í samtali við franska fjölmiðla.

„Ákvörðun verður tekin á næstu dögum og líkamlegt ástand mig metið. Mér gengur mun betur og hnéð verður betra með hverjum deginum.“

„Markmiðið er skýrt - að taka þátt í HM. Það væri frábært,“ sagði hann.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×