Vildu nýjan hund en fundu þann gamla Samúel Karl Ólason skrifar 3. maí 2014 22:23
Fjölskylda í Eatontown í New Jersey í Bandaríkjunum ætlaði nýlega að fá sér nýjan hund í tilefni tíu ára afmælis einnar í fjölskyldunni. Þegar fellibylurinn Sandy fór yfir svæðið, í október 2012, flúði hundur þeirra af heimilinu og fannst ekki aftur. Fimm manna fjölskyldan fór nýlega í hundaathvarf til að ættleiða nýjan hund, en viti menn, fyrsti hundurinn sem þau sáu í athvarfinu var gamli hundur þeirra, Reckless. Starfsmenn athvarfsins höfðu þó gefið hundinum nafnið Lucas. „Hann var orðinn aðeins stærri, því hann hafði fengið nóg að borða,“ segir Chuck James við AP fréttaveituna. „Um leið og hann lagðist við fætur konunnar minnar var ég fullviss um að þetta væri hann.“ Chuck segir að fjölskyldan hafi leitað að Reckless í marga mánuði eftir fellibylinn en leitin hafi ekki borið árangur. „Við héldum alltaf í vonina, en á endanum kemur tími til að halda áfram.“ Hann var beðinn um að sanna að hann væri eigandi hundsins og fékk vin sinn til að senda sér mynd af fjölskyldunni með Reckless. „Við erum svo ánægð með að hafa fengið hann aftur,“ segir Chuck. „Guði sé lof fyrir athvörf sem þessi, þar sem dýrin eru ekki aflífuð. Því í hvert sinn sem svona dýr er drepið, gæti einhver misst góðan vin.“ Fjölskyldan býr nú á hóteli því enn standa yfir viðgerðir á húsi þeirra sem skemmdist mjög í fellibylnum. En um helgina fór fjölskyldan í útilegu til að fagna heimkomu Reckless.
Mest lesið Vissu ekki að bíllinn hefði oltið fyrr en þær sáu myndir Innlent Íslendingar gerðu það sem tröllunum mistókst Innlent Sjálfsafgreiðslukassar og aukin sjálfvirkni auki vandann Innlent Býst við að samningar náist fljótlega og auglýsir eftir starfsfólki Innlent Bíll við bíl undir Eyjafjöllum: „Þetta er allt í kaos“ Innlent Segist ætla senda spítalaskip til Grænlands Erlent Maður skotinn til bana í Mar-a-Lago Erlent Töluverður viðbúnaður vegna tilkynningar um kajak Innlent „Held hann hafi ekki fattað hvað hann fór rétt að“ Innlent Fjórir sinueldar á sólarhring: „Við skulum bara leggjast á bæn og vona að það komi snjór“ Innlent Fleiri fréttir Maður skotinn til bana í Mar-a-Lago Pakistanar gerðu loftárásir í Afganistan Segist ætla senda spítalaskip til Grænlands Íranir mótmæla á ný Minnst tólf farist í snjóflóðum á einum mánuði Stuðningur við norsku konungsfjölskylduna í frjálsu falli Rússneskir tölvuþrjótar réðust á grænlenskar heimasíður Til skoðunar að taka Andrew úr erfðaröðinni Svaraði tolladóminum með því að leggja toll Íranski byltingarvörðurinn kominn á hryðjuverkalista ESB og á Íslandi Toppurinn kominn á hæstu kirkju heims Huldumaður gaf gullstangir til að laga vatnslagnir borgarinnar Spenna eykst á einum helgasta stað gyðinga og múslima Áfram húsleit á fyrra heimili Andrews „Mjög, mjög sorglegt“ Bandaríkjastjórn opnar síðu þar sem Evrópubúar geta séð lokað efni Andrew látinn laus Norðmenn koma af fjöllum og taka fyrir ummæli Trump Nýjar forsetaflugvélar fá Trump-litina „Besti vinur“ Epsteins ætlaði að leysa frá skjóðunni 2016 Karl III: Réttlætið verður að hafa sinn gang Viðbúnaðurinn ekki verið eins mikill frá innrásinni í Írak Andrew handtekinn á heimili sínu Rétta yfir fjórtán ára gömlum leigumorðingja Tjáningarfrelsistal tæknirisa „hreinn þvættingur“ „Grunlaus“ Wexner segist hafa verið gabbaður af Epstein Skíðahópur fórst í snjóflóði í Kalíforníu Fyrrverandi forseti Suður-Kóreu í lífstíðarfangelsi Umdeilt Friðarráð fundar í Washington í dag Tengiltvinnbílar þrefalt eyðslufrekari en framleiðendur segja Sjá meira