Sunderland bjargaði sér með sigri á WBA Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 7. maí 2014 18:15 Fabio Borini fagnar marki sínu í kvöld Vísir/Getty
Sunderland verður áfram í ensku úrvalsdeildinni á næsta tímabili en lærisveinar Gus Poyet björguðu sér endanlega frá falli í kvöld með því að vinna West Bromwich Albion 2-0 á heimavelli. Útlitið var ekki bjart um tíma fyrir Sunderland sem hefur setið í fallsæti stóran hluta tímabilsins. Sunderland tapaði fimm leikjum í röð frá 22. mars til 12. apríl en Poyet tókst að koma sínum mönnum í gang. Liðið hefur átt magnaðan endasprett og vann sinn fjórða deildarleik í röð í kvöld. Bæði mörk Sunderland-liðsins komu í fyrri hálfleiknum. Jack Colback skoraði það fyrra á 13. mínútu eftir fyrirgjöf Marcos Alonso en það seinna skoraði Fabio Borini á 31. mínútu eftir samspil við Sebastian Larsson. Sunderland er þar með komið með 38 stig eða fimm stigum meira en Norwich sem er í þriðja neðsta sætinu. Norwich er þremur stigum á eftir West Bromwich Albion en Albion-liðið er með það mikið betri markatölu að Norwich er í raun fallið úr deildinni. Fulham og Cardiff féllu um síðustu helgi og það verður því engin fallbarátta í lokaumferðinni.
Enski boltinn Mest lesið Vandræðalegasta viðtal sögunnar? Fótbolti Infantino hylmi yfir fjárdrátt Eto'o fyrir stuðning Fótbolti United aldrei í vandræðum Fótbolti Þrjár Evrópuþjóðir í undanúrslitum Körfubolti „Pirraðastur er ég yfir þessum tíu lokamínútum“ Handbolti Þórsarar komnir á blað Handbolti Kanalausir Eyjamenn unnu Suðurlandsslaginn Handbolti Lumbrað á Norðmönnum og dramatík í Prag Fótbolti Uppgjörið: Afturelding - FH 33-33 | Allt jafnt eftir háspennuleik Handbolti Sextán íslensk mörk í Meistaradeildinni Handbolti Fleiri fréttir Jólahátíðin snýr aftur á Englandi Góður gangur í viðræðum Arsenal og Arteta Dómur gæti hafa verið kveðinn upp í máli Manchester City Pochettino segir að Englandsmeistaratitillinn ætti að vera dæmdur af Chelsea Harmsaga Mudryk heldur áfram Stjörnur Chelsea tóku yfir í níu marka leik Þrumufleygur Ødegaard tryggði Arsenal sigur gegn Napoli Sá svekkti tryggði Liverpool sigur Rooney segir að United hafi gert tvenn stór mistök í sumar Átti ekki að dæma víti á Liverpool en ekki heldur að líta á skjáinn Fyrrverandi leikmaður Liverpool leitar liðs á LinkedIn Segir að Haaland muni verða besti markaskorari allra tíma Hull tapaði úrvalsdeildarslag í deildarbikarnum Mac Allister svekktur að fá ekki nýjan samning Treyjur Liverpool taka breytingum Ekki sést á leikjum Nottingham Forest síðan í febrúar Ekkert benti til brottfarar Howe en félagið var með plan Joey Barton mun þurfa að dúsa áfram í fangelsi Raya lengi að taka sig til og Gabriel bestur í glímu Sjáðu sigurmark Ødegaard og glæsilegt jöfnunarmark Maitland-Niles Lögreglan rannsakar átök milli stuðningsmanns og leikmanns Versti stjóri Bretlandseyja? Geggjað mark Ödegaard skipti sköpum Ótrúlegt jöfnunarmark Everton undir blálokin Aston Villa jafnaði 56 ára gamalt met Haaland sló met Agüero Hull hélt hreinu og ekkert mark komið hjá Villa Arbeloa í brasi City marði Coventry Steindautt er Tottenham náði í fyrsta stigið Sjá meira