Mata yrði dýrasti leikmaður United frá upphafi Arnar Björnsson skrifar 23. janúar 2014 07:15 Juan Mata fagnar marki í leik með Chelsea. Vísir/AFP
Juan Mata fer í læknisskoðun hjá Manchester United í dag. Standist hann hana verður hann dýrasti leikmaður Manchester United. Kaupverðið er talið vera um 37 milljónir punda. Mata er 25 ára, fæddur í Burgos og hóf knattspyrnuferilinn hjá Real Oviedo. Hann gekk til liðs við Real Madríd árið 2003, lék ekki með a-liðinu en skoraði 10 mörk með b-liði Real í 39 leikjum. Árið 2008 fór hann til Valencia og sló í gegn með liðinu, skoraði 46 mörk í 174 leikjum. Í ágúst 2011 borgaði Chelsea 26 milljónir punda fyrir hann og gerði við hann fimm ára samning. Mata var gríðarlega öflugur á síðustu leiktíð og kom við sögu í flestum leikjum Lundúnaliðsins á síðustu leiktíð ásamt Oscar og Fernando Torres. Alls lék hann 64 leiki og var 55 sinnum í byrjunarliðinu. Mata skoraði 20 mörk fyrir Chelsea og varð næstmarkahæstur á eftir Fernando Torres sem skoraði tveimur mörkum meira. Leikmenn Chelsea völdu hann leikmann ársins á síðustu leiktíð en eftir að Jose Mourinho tók við liðinu var Spánverjinn settur út í kuldann. Mata skoraði 11 mörk í 35 leikjum í úrvalsdeildinni á síðustu leiktíð en í vetur kom hann aðeins við sögu í 13 leikjum í deildinni og náði ekki að skora. Mata á að baki 32 leiki fyrir spænska landsliðið og er búinn að skora í þeim 9 mörk. Í september 2008 borgaði United 30,75 milljónir punda fyrir Búlgarann, Dimitar Berbatov. Hann er dýrasti leikmaður United eins og sakir standa en það er líklegt til að breytast með komu Spánverjans á Old Trafford.
Enski boltinn Mest lesið Hafnaði 34 milljónum: „Vil ekki styðja kerfi sem býr til fíkn og eyðileggur líf“ Sport Segir starfið í húfi hjá Alfreð Handbolti Sjáðu fyrsta mark Wirtz, laglega sjálfsmarkið og Watkins stúta Chelsea Enski boltinn Littler sjóðheitur en sá fjórði besti varð fyrir áfalli Sport Liverpool-skotmarkið ekki á förum í janúar Enski boltinn Salah sakaður um dýfu: „Getum ekki keppt við Egypta og dómarana“ Fótbolti Haukur náði hundrað og hundrað fyrir EM Handbolti Arnar Þór ráðinn til FIFA: „Himinlifandi að hafa fengið þetta starf“ Fótbolti Aldrei spilað þarna en sagði strax já Enski boltinn Dagskráin í dag: Messan, meistarar Víkings, píla og NFL-veisla Sport Fleiri fréttir Sjáðu magnaða vörslu Raya: „Þetta var stórkostlegt“ Sjáðu fyrsta mark Wirtz, laglega sjálfsmarkið og Watkins stúta Chelsea Liverpool-skotmarkið ekki á förum í janúar Aldrei spilað þarna en sagði strax já „Viss um að ég myndi skora einn daginn“ Watkins hélt ótrúlegri sigurgöngu Villa áfram Schade og Jiménez sendu Brentford og Fulham í efri hlutann Arsenal aftur á toppinn Fyrsta mark Wirtz í þriðja sigrinum í röð Cherki aðalmaðurinn í sigri City Úlfarnir heiðruðu minningu Jota Andri Lucas frá í mánuð Sjáðu dönsku þrumuna sem færði United-mönnum öll þrjú stigin Segir að Arsenal stefni á sögulega fernu á þessu tímabili Amorim endaði viðtalið á gamansömum nótum „Við eigum heima í Evrópu“ Daninn skaut Man. United upp fyrir Liverpool Amorim segir strákinn í frystinum vera framtíðin hjá Man. United Martinez með fyrirliðabandið og báðir Fletcher-bræðurnir á bekknum Havertz gæti snúið aftur á næstu dögum Alfons og Willum sáu tvö rauð spjöld fara á loft Synir Diogo Jota leiða leikmenn út á Anfield Cunha vill skemmta og Howe treystir leikmönnum United horfir til Þýskalands eftir höfnun Semenyo Haaland stóðst vigtun eftir jólin Hápunktarnir hingað til í enska boltanum Goðsögn fallin frá Kærður af knattspyrnusambandinu Bestu jólamörkin: Drogba, Scholes eða Giroud? Van de Ven bað Isak afsökunar: „Vildi ekki meiða hann“ Sjá meira