Enski boltinn

Everton ekki eftirbátur Liverpool

Kolbeinn Tumi Daðason skrifar
Steven Naismith skorar annað mark sitt og annað mark Everton.
Steven Naismith skorar annað mark sitt og annað mark Everton. Mynd/Twitter-síða Everton
Tvö mörk Steven Naismith á fyrsta hálftímanum gerði Everton auðvelt fyrir í 4-0 sigri á Stevenage í enska bikarnum í dag.

Hinn skoski Naismith skoraði strax eftir sex mínútur eftir mikinn atgang í teig heimamanna. Stuðningsmenn C-deildarliðsins, sem sáu sína menn slá út Newcastle á sama vettvangi fyrir þremur árum, urðu heldur svartsýnir er Naismith skoraði aftur á 32. mínútu eftir undirbúning varamannsins Leon Osman.

Hollendingurinn Johnny Heitinga nýtti tækifærið í liði Everton í dag og skoraði þriðja markið eftir tíu mínútna leik í síðari hálfleik en heiðurinn að markinu átti Belginn Kevin Mirallas. Það var svo varamaðurinn Magaye Gueye sem innsiglaði sigurinn fimm mínútum fyrir leikslok.

Everton verður því í pottinum þegar dregið verður í fimmtu umferð keppninnar á morgun. Þeir bláklæddu eiga svo stórleik fyrir höndum í næstu viku þegar þeir mæta grönnunum í Liverpool í ensku úrvalsdeildinni.

Liverpool tryggði sér einnig sæti í 5. umferðinni fyrr í dag þegar liðið vann 2-0 sigur á Bournemouth.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×