Fjármagna kaup á Cavani með sölu á Lukaku Guðmundur Marinó Ingvarsson skrifar 26. janúar 2014 23:15 Cavani er ekki sáttur hjá PSG Vísir/Getty
Chelsea ætlar að selja belgíska framherjann Romelu Lukaku næsta sumar til að fjármagna kaup á öðrum framherja Edinson Cavani hjá Paris Saint-Germain. Lukaku hefur skorað 26 mörk á láni hjá Everton og West Brom síðustu 18 mánuðina en Jose Mourinho knattspyrnustjóri Chelsea telur Belgan unga ekki nógu góðan til að eiga fast sæti í liði Chelsea. Mourinho ætlar að kaupa framherja í hæsta gæðaflokki næsta sumar og horfir til Cavani sem fær ekki að leika í sinni bestu stöðu hjá PSG og er mjög ósáttur við það. Lukaku er aðeins tvítugur og er talið að Chelsea vilji fá um 23 milljónir punda fyrir hann og hafa lið á borð við Arsenal, Tottenham og Atletico Madrid verið orðuð við hann. Cavani gæti kostað um 50 milljónir punda og þarf Chelsea því að selja Lukaku og mögulega annað hvort Fernando Torres eða Demba Ba líka næsta sumar til að fjármagna kaupin á Úrúgvæanum. „Enginn þriggja framherja okkar verður hér næstu tíu árin. Við höfum leikmenn í öðrum stöðum eins og Eden Hazard og Willian sem verða það aftur á móti. Demba Ba er 28 ára, Samuel Eto‘o 32ja og Torres 29 ára,“ sagði Mourinho sem ætlar þó ekki að kaupa framherja í janúar því rétti maðurinn er ekki á lausu. „Einn framherjanna verður seldur fyrir einhvern sem getur verið hér lengi. Þegar við kaupum framherja munum við kaupa þann rétta en núna er ekki tíminn til þess.“
Enski boltinn Mest lesið Skotið sem geigaði og breytti öllu fyrir Ísland Handbolti Íslendingar bregðast við stórtíðindum kvöldsins: „Takk fyrir Jesú“ Handbolti Íslenskur sigur á morgun gulltryggir sæti í undanúrslitum Handbolti Skýrsla Henrys: Andlegt gjaldþrot enn og aftur Handbolti „Snorri á alla mína samúð“ Handbolti Hleraði leikhlé Norðmanna Handbolti Króatar Dags í góðri stöðu en Ísland í þröngri stöðu Handbolti „Mjög svekkt og sár“ út í Skíðasamband Íslands Sport Lærisveinar Arons úr leik eftir tap í framlengdum leik Handbolti Gísli gagnrýnir fyrirkomulagið á EM Handbolti Fleiri fréttir Sjáðu laglega afgreiðslu hins sjóðheita Barrys Sjóðheitur Dorgu frá í um tíu vikur Barry bjargaði stigi fyrir Everton Ekki gerst hjá Arsenal í átján ár Sjáðu draumamark Dorgu og öll hin í sigri United á Arsenal Varamaðurinn tryggði United sigur gegn Arsenal Aston Villa lifði af orrahríð fyrir norðan og náði Manchester City Hlín utan hóps er Lehmann kom að marki í fyrsta leik Estevao með mark og stoðsendingu gegn lánlausu Palace liði Sjáðu alla dramatíkina úr enska boltanum Van Dijk segir að það hafi „klárlega verið brotið á sér“ í sigurmarkinu „Sigurmark undir lokin er fullkomið fyrir okkur“ Liverpool-vandræðin halda áfram og Bournemouth með sigurmark í blálokin Stórbrotið sigurmark hjá Harry Wilson Haaland fékk smá hvíld í kærkomnum sigri City Hömruðu meðan járnið var heitt í sigri gegn Sunderland Sonur Wayne Rooney spilaði á Old Trafford Arsenal sagt vera að skoða kaup á Julián Álvarez í sumar Gæti farið frá Liverpool til Tottenham Íslenskir spéfuglar vöktu kátínu Spursara en reittu tvo til reiði Konaté syrgir föður sinn Van Dijk: Sýndi Slot vanvirðingu með þessari spurningu Alisha Lehmann verður nýr liðsfélagi Hlínar Þættir um Manchester United í anda „The Crown“ Leikmenn City endurgreiða stuðningsmönnum Óttast að Grealish verði lengi frá Xabi Alonso myndi segja nei við öllum núna nema Liverpool Bauð Paul Scholes heim til sín til að ræða málin Leikmaður Liverpool lenti í eltihrelli Vilja sjá þessa stjóra í brúna hjá United Sjá meira