Enski boltinn

Arsenal gerir risasamning við Puma

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Ivan Gazidis og Björn Gulden, stjórnarformaður Puma.
Ivan Gazidis og Björn Gulden, stjórnarformaður Puma. Vísir/Getty
Arsenal gerði í dag einn stærsta samning við íþróttavöruframleiðanda sem enskt knattspyrnufélag hefur gert frá upphafi.

Arsenal og Puma tilkynntu nýjan fimm ára samning sem mun færa félaginu 150 milljónir punda - um 28,5 milljarða króna - í tekjur á næstu fimm árum.

Samningurinn tekur gildi þann 1. júlí næstkomandi en þá mun 20 ára samstarfi Arsenal við Nike taka enda.

„Þetta er afar spennandi dagur fyrir Arsenal en félagið mun fá þennan pening inn í starfið strax næsta sumar,“ sagði Ivan Gazidis, framkvæmdarstjóri Arsenal.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×