Enski boltinn

Paris St Germain búið að kaupa Cabaye

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Yohan Cabaye.
Yohan Cabaye. Vísir/NordicPhotos/Getty
Sky Sports segir frá því í kvöld að Newcastle og Paris St Germain hafi komist að samkomulagi um kaup franska liðsins á Yohan Cabaye en það hefur lengi litið út fyrir það að franski miðjumaðurinn væri á förum frá St. James Park.

Newcastle hafði áður hafnað fjórtán milljón punda tilboði PSG í Yohan Cabaye en nýja tilboðið er talsvert hærra samkvæmt fréttinni hjá Sky Sports.

Newcastle vildi fá að minnsta kosti tuttugu milljónir punda fyrir miðjumanninn öfluga og það lítur út fyrir að hinir ríkur eigendur PSG hafi verið tilbúnir að borga slíka upphæð fyrir leikmanninn.

Yohan Cabaye er 28 ára gamall og kom til Newcastle frá Lille árið 2011. Hann hefur spilað 25 landsleiki fyrir Frakka undanfarin þrjú ár.

Vísir/NordicPhotos/Getty



Fleiri fréttir

Sjá meira


×