Rikki Daða: Vandræðalega barnalegt hjá Arsenal | Myndband 25. nóvember 2014 11:30
Manchester United lagði Arsenal, 2-1, í ensku úrvalsdeildinni í fótbolta um helgina þrátt fyrir yfirburði Lundúnaliðsins. „Fyrri hálfleikurinn var gjörsamlega í eign Arsenal. Manchester United komst ekki út úr teignum. Það var fyrst og fremst David De Gea sem stóð sig vel og sömuleiðis Chris Smalling sem var með strákana Paddy litla og Tyler Blacket með sér,“ sagði Hjörvar Hafliðason í Messunni á Stöð 2 Sport 2 í gærkvöldi. „Tyler Blacket á kannski eftir að spila eitthvað í úrvalsdeildinni en ég efast um Paddy McNair. Ég held að þetta verði Championship-leikmenn þegar fram líða stundir. Það var með ólíkindum að United hafi unnið þennan leik.“ Eftir að United komst í 1-0 byrjaði Arsenal að sækja eins og enginn væri morgundagurinn og lagði litla áherslu á varnarleikinn. „Arsenal fór að sækja eins og það væri ein mínúta eftir, en ekki hálftími. Hvers vegna þeir fóru að taka alla þessa sénsa svona snemma skil ég ekki,“ sagði Hjörvar og Ríkharður Daðason greip inn í. „Skilurðu ekki? Þú ert búinn að horfa upp á þetta undanfarin ár. Mér finnst þetta alveg með ólíkindum. Ég er alveg sammála þér. Þetta er óskiljanlegt en þetta kom mér ekkert á óvart,“ sagði hann og Hjörvar bætti við: „Þarna eru tæpar fimmtán mínútur eftir. Þetta var svolítið stupid hjá Arsenal.“ Ríkharður Daðason er alveg búinn að gefast upp á varnarleik Arsenal sem hefur áður verið tekinn fyrir í Messunni. „Þetta er hætt að vera fyndið. Þetta er vandræðalega barnalegt. Svo segir Wenger eftir leikinn að hann viti ekki af hverju þeir voru ekki með mann á miðlínunni. Hver á að vita það ef stjórinn veit það ekki?“ Alla umræðuna má sjá í spilaranum hér að ofan.
Enski boltinn Tengdar fréttir Eigandi Arsenal: Wenger þarf að læra af mistökum sínum Ríkasti maður Rússlands segir að Arsenal þurfi að styrkja liðið og Arsene Wenger hafi peningana til að gera það. 25. nóvember 2014 20:15 Arteta: Tapið gegn United var ósanngjarnt Miðjumaður Arsenal skilur ekki hvernig Arsenal fór að því að tapa gegn Manchester United í ensku úrvalsdeildinni um helgina. 24. nóvember 2014 20:30 Loks sigur á útivelli hjá Manchester United | Sjáið mörkin Manchester United gerði sér lítið fyrir og lagði Arsenal 2-1 á Emirates leikvanginum í Lundúnum í kvöld í ensku úrvalsdeildinni í fótbolta. 22. nóvember 2014 00:01 Mest lesið Bað dómarann um hjálp út af megnri marijúanalykt Sport Myndband ekki fyrir viðkvæma: „Horfi niður og sé höndina mína í einhverri steik“ Íslenski boltinn Enn kynt upp í rígnum: Ekroth keyrði utan í Aron Íslenski boltinn Sjáðu mörk Isaks í fyrsta leik Barcola Enski boltinn Norðmaðurinn fjórði en reif kjaft: „Hvaða lúsera er ég að keppa við?“ Sport Hágrét í bílnum með mömmu Fótbolti Fyrsta tap Mourinho eftir ótrúlega dramatík Fótbolti „Jón Þórarinn og sóknarleikurinn glöddu mig mest“ Handbolti Rafmagnið af í Mosó og seinni hálfleikur spilaður síðar Handbolti Taktík að taka á sig þessa hörðu refsingu Formúla 1 Fleiri fréttir Yfirgefur Liverpool fyrir Sádi-Arabíu Newcastle - Bournemouth | Halda norðanmenn uppteknum hætti? Segist aldrei hafa efast um Gakpo Sjáðu mörk Isaks í fyrsta leik Barcola Isak heitur í sigri Liverpool og strax búinn að jafna síðustu leiktíð Carrick himinlifandi eftir kaup sumarsins Mætir gömlu félögunum í Manchester United í endurkomunni til Englands Fékk bombu í andlitið en meiddist á hné Tróð inn lagatitlum og enginn tók eftir því Sér enn eftir að hafa hafnað tækifærinu „Gangandi martröð“ Stórir póstar utan Meistaradeildarhóps Liverpool Skaðar orðspor dómara: Lék sér að því að flauta ekki upp á grín Tielemans tók vítið með Bruno Martinelli seldur til Sádi-Arabíu Bestu kaupin í sögu enska boltans Barcola í hóp á morgun Liðin í enska boltanum eyddu meira en stærstu deildir Evrópu til saman Liverpool fékk nýjan markvörð Stóðst læknisskoðun og stakk svo af Liverpool hringdi svo hann sagði nei við Chelsea Lækkaði launin til að upplifa drauminn Fengu þrjá á lokadegi Tókst ekki að ræna Belganum Dagskráin í dag: Einn leikur á sviðið út af fyrir sig Ndiaye til Manchester City Man ekki eftir Chelsea-liðinu svona lítið með boltann City borgar 125 milljónir punda fyrir Enzo Mbaye til Aston Villa Ensku félögin með bókhaldsbrellur Sjá meira
Eigandi Arsenal: Wenger þarf að læra af mistökum sínum Ríkasti maður Rússlands segir að Arsenal þurfi að styrkja liðið og Arsene Wenger hafi peningana til að gera það. 25. nóvember 2014 20:15
Arteta: Tapið gegn United var ósanngjarnt Miðjumaður Arsenal skilur ekki hvernig Arsenal fór að því að tapa gegn Manchester United í ensku úrvalsdeildinni um helgina. 24. nóvember 2014 20:30
Loks sigur á útivelli hjá Manchester United | Sjáið mörkin Manchester United gerði sér lítið fyrir og lagði Arsenal 2-1 á Emirates leikvanginum í Lundúnum í kvöld í ensku úrvalsdeildinni í fótbolta. 22. nóvember 2014 00:01