Kynlíf með fleiri en tuttugu konum sagt minnka líkur á krabbameini Atli Ísleifsson skrifar 28. október 2014 14:26 Vísindamennirnir segja að kynlíf með konum verji karlmenn að þessu leyti og segja að þeir sem séu lauslátir stundi meira kynlíf en þeir sem séu í sambandi og aðhyllast einkvæni. Vísir/Getty
Vísindamenn við Háskólann í Montreal í Kanada hafa komist að því að minni líkur séu á að menn fái blöðruhálskrabbamein, hafi þeir stundað kynlíf með tuttugu konum eða fleiri. Niðurstöður rannsóknarinnar sýna að karlmenn sem hafa átt fleiri en tuttugu kvenkyns rekkjunauta séu um þriðjungi ólíklegri til að fá blöðruhálskrabbamein og 19 prósent ólíklegri til að fá sjúkdóminn í sinni skæðustu mynd.Í frétt Telegraph kemur einnig fram að þeir karlmenn sem hafa sofið hjá tuttugu karlmönnum eða fleirum séu tvöfalt líklegri til að fá blöðruhálskrabbamein samanborið við karlmann sem hefur aldrei stundað kynlíf með öðrum karlmanni. Vísindamennirnir segja að kynlíf með konum verji karlmenn að þessu leyti. Þá stundi lauslátir meira kynlíf en þeir sem séu í sambandi og aðhyllist einkvæni. Á móti kemur fram að samkynhneigðir græði ekki á því að vera lauslátir, líkt og gagnkynhneigðir, þar sem þeir eigi á aukinni hættu að fá kynsjúkdóma og að kynlífið valdi líkama þeirra skaða. Samkvæmt rannsókninni eru hommar, sem einungis hafa stundað kynlíf með einum öðrum karlmanni, ekki líklegri til að fá blöðruhálskrabbamein. Marie-Elise Parent, doktor við háskólann og sú sem fór fyrir rannsókninni, segir í samtali við Telegraph að aukinn fjöldi kvenkyns rekkjunauta stuðli mögulega að aukinni tíðni sáðláta sem hafi varnaráhrif gegn blöðruhálskrabbameini. Parent segist þó ekki ætla að mæla sérstaklega með því að heilbrigðisyfirvöld hvetji karlmenn til að stunda kynlíf með sem flestum konum. Rannsóknin náði til rúmlega 3.200 manna sem voru rannsakaðir yfir fjögurra ára tímabil.
Mest lesið Sefur í kjallaranum þar sem Heuermann myrti og sundurlimaði fórnarlömb sín Erlent Hákon Þór hvarf sporlaust í Búdapest Innlent Réðu aftur starfsmann sem var rekinn í siðanefndarfári Innlent Fullyrðingar um ETS-kerfi og strandsiglingar standast ekki Innlent Alvarlegt slys þegar ekið var á aldraða konu Innlent Bakslag í vorkomu: Snjóföl og hálka í næstu viku Veður Hvarf Hákonar á borði ríkislögreglustjóra Innlent Lánið í höfn og Harry veitir Trump óumbeðin ráð Erlent Farþegar sjá ekki fólkið sem gegnumlýsir farangurinn Innlent Starfsfólki MAST ógnað: „Ég veit hvar þú átt heima“ Innlent Fleiri fréttir Ræða ekki loftslagsmál á umhverfisfundi til að friðþægja Bandaríkjastjórn Sækir aftur um reynslulausn Handtaka hermann sem veðjaði á að Maduro yrði tekinn Sefur í kjallaranum þar sem Heuermann myrti og sundurlimaði fórnarlömb sín Lánið í höfn og Harry veitir Trump óumbeðin ráð Segir vopnahlé framlengt um þrjár vikur Fyrirtæki MrBeast sakað um að afsaka kynferðislega áreitni Skjóta á alla báta sem leggja tundurdufl Með lista yfir góða og slæma bandamenn Fimm í lífshættu eftir lestarslysið Fjórir í lífshættu eftir lestarslys í Danmörku Vélmennið Ace sigrar atvinnumenn í borðtennis Tóku tvö skip og réðust á það þriðja Óvænt jafntefli í kjördæmastríðinu Sækja mannréttindasamtök til saka vegna njósna um öfgamenn Vilja senda afganska bandamenn og fjölskyldur til Kongó Hætta að styrkja Feneyjartvíæringinn vegna þátttöku Rússa Vilja tæpar tvö hundruð billjónir til varnarmála Allir Bretar fæddir eftir 2008 í lífstíðarbann frá tóbaki Framlengir vopnahléið og herkvína Þriðji þingmaðurinn segir af sér á viku Viðræður enn á ís vegna „óásættanlegrar“ hegðunar Ein af hinstu óskum Frans páfa enn óuppfyllt „Jæja, herra Heuermann. Mér skilst að þú hyggist játa fyrir mér þessi morð?“ Starmer vissi ekkert en þrýstingurinn mikill að gefa Mandelson grænt ljós Skaut ferðamann til bana við mexíkóskan pýramída Friðurinn úti á morgun en ekkert ákveðið um viðræður Óttast enn stærri skjálfta í Japan á næstu dögum Vilja festa símabannið í lög Vill þrjátíu milljarða vegna fyllerísfréttar Sjá meira