Enski boltinn

Rodgers: Sköpuðum ekki nægilega mörg færi

Anton Ingi Leifsson skrifar
Rodgers hefur séð sína menn spila betur en í dag.
Rodgers hefur séð sína menn spila betur en í dag. Vísir/Getty
Brendan Rodgers, stjóri Liverpool, segir að liðið hafi ekki náð að skapa sér eins mörg færi og það vildi í leiknum.

„Okkar var refsað fyrir mistökin og það kostaði okkur leikinn. Við spiluðum boltanum vel, en það vantaði aðeins uppá á síðasta þriðjungnum," sagði Rodgers í leikslok.

„Við sköpuðum okkur ekki eins mikið af færum og við vildum. Þetta snýst ekki bara um Balotelli, þetta snýst um allt liðið."

„Við töpuðum leiknum í dag og við það erum við ósáttir."

Liverpool er eftir leikinn í dag í sjöunda sæti deildarinnar, en gæti dregist aðeins neðar fari úrslit dagsins ekki þeim í hag.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×