Rio fékk þriggja leikja bann fyrir niðrandi ummæli um konur Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar 29. október 2014 19:11 Vísir/Getty
QPR verður án miðvarðarins Rio Ferdinand næstu þrjá leikina en leikmaðurinn var í dag úrskurðaður í þriggja leikja bann af enska knattspyrnusambandinu. Ástæðan er að hann notaði slanguryrði í færslu á Twitter-síðu sinni sem þykir niðrandi fyrir konur. Í umræddri færslu var hann að svara öðrum sem gaf í skyn að QPR þyrfti sennilega á nýjum miðverði að halda. Ferdinand svaraði viðkomandi með því að hvetja móður hans til að bjóða sig í verkið og notaði orðið „sket“ sem þykir vísa til lauslátrar stúlku eða konu. Færsluna skrifaði hann þann 1. september og má sjá hér fyrir neðan. Ásamt leikbanni fékk Ferdinand tæplega fimm milljóna króna sekt og alvarlega áminningu. Honum er einnig gert að sækja námskeið á vegum enska sambandsins. Ferdinand lék á sínum tíma 81 landsleik fyrir hönd Englands og er í sérstakri nefnd á vegum Greg Dyke, formanns enska knattspyrnusambandsins, sem fjallar um leiðir til að bæta knattspyrnuna í Englandi."@ManCunian56: @rioferdy5 @matiousmarston Maybe QPR will sign a good CB they need one" > get ya mum in, plays the field well son! #sket — Rio Ferdinand (@rioferdy5) September 1, 2014
Enski boltinn Mest lesið Boltinn í vír og Norðmenn segja algjört hneyksli að markið skyldi standa Fótbolti Hökta áfram og mæta Englandi í undanúrslitum Fótbolti Hissa á útspili Haalands Fótbolti Metið kolféll í Laugavegshlaupinu Sport Bellingham sendi sára Norðmenn heim Fótbolti Súrrealískt að spila golf með Trump Fótbolti Héldu flugi eftir sigurinn á Íslandi og drottna yfir EM U19 Fótbolti Ken Bates látinn Enski boltinn Tindastóll mætti ekki til leiks Íslenski boltinn „Ástæðan fyrir því að það er talað um að hún sýni ekki nóg“ Íslenski boltinn Fleiri fréttir Ken Bates látinn Fyrrverandi stjarna í enska boltanum handtekin Önnur risastór breyting á þeim sem stýra Liverpool Manchester City kaupir efnilegan markvörð Stjarna úr ensku úrvalsdeildinni keyrði niður konu Newcastle yngir upp á sumri breytinga Arsenal fær Meslier frá Leeds Amorim viðurkenndi mistök og bað stuðningsmenn United afsökunar Fyrsti leikurinn er auðvitað á móti Xabi Alonso Haaland orðinn stærri en Manchester City Ein stærstu félagaskiptin í sögu kvennaknattspyrnunnar Bruno Guimaraes tilkynnir Newcastle að hann vilji fara til Arsenal Manchester United kaupir annan Brassa á miðjuna Arbeloa nýr stjóri Fulham og vill taka leikmenn með sér frá Real Madrid Hildur til Newcastle Sleit krossband í sigrinum gegn Bandaríkjunum Newcastle ætlar að nota Tonali-peningana til að kaupa eina af ungu stjörnum HM Kaupa George frá Chelsea Til Tottenham fyrir sautján milljarða Fimmti stjóri Forest á einu ári Skera niður hjá stelpunum Hvað er að gerast hjá Manchester United? Stórhuga Spursarar að kaupa Tonali á metverð Pereira furðu lostinn að hafa verið rekinn frá Forest Þjálfarinn kallaði hana „geðsjúkling“ og stundaði sálfræðileiki við hana Verður sá dýrasti í sögu Tottenham Klopp reiður: „Ef þetta er brot þá hefði Arsenal ekki orðið Englandsmeistari“ Chelsea með harðorða yfirlýsingu um nýjan stjóra Man. City Manchester City staðfestir loksins Maresca sem stjóra Newcastle með augastað á efnilegum miðjumanni Freiburg Sjá meira