Erlent

Var skotin í höfuðið gengin tíu vikur

Hanna Rún Sverrisdóttir skrifar
Carolina Sepe var gengin tíu vikur þegar hún fékk byssuskot í höfuðið.
Carolina Sepe var gengin tíu vikur þegar hún fékk byssuskot í höfuðið.
Carolina Sepe 25 ára sem fékk byssuskot í höfuðið þegar hún var komin tíu vikur á leið, lést á laugardag mánuði eftir að hún fæddi dóttur sína þá komin 27 vikur á leið. Frá þessu er meðal annars sagt á Telegraph.

Stúlkan var rúmt kíló að þyngd við fæðingu. Hún hefur verið í hitakassa frá fæðingu en læknar segja ástand hennar stöðugt.

Domenico Aschettino, nágranni Sepe, braust inn á heimili fjölskyldu hennar og skaut hana í höfuðið.
Það var 25. ágúst síðastliðinn að Domenico Aschettino, nágranni Sepe, braust inn á heimili fjölskyldu hennar og skaut hana í höfuðið. Hann hafði ætlað að skjóta föður Sepe en þeir höfðu átt í deilum eftir alvarlegt umferðarslys.

Aschetti miðaði byssunni á aðra heimilismenn og skaut. Bæði bróðir og móðir Sepe særðust og amma hennar hlaut alvarlega áverka eftir byssuskotin.

Eiginmaður Sepe náði að flýja út um baðherbergisglugga með tveggja ára son þeirra hjóna. Hann hætti í vinnunni sinni og hefur heimsótt eiginkonu sína á hverjum degi og beðið fyrir henni.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×