City valtaði yfir andlaust lið Tottenham | Sex marka niðurlæging Guðmundur Marinó Ingvarsson skrifar 24. nóvember 2013 00:01 mynd:nordic photos/getty
Manchester City átti ekki í vandræðum með Tottenham á heimavelli sínum í ensku úrvalsdeildinni í dag. City vann leik liðanna 6-0 en staðan í hálfleik var 3-0. Jesús Navas gaf tóninn strax á 14. sekúndu þegar hann lyfti boltanum yfir Hugo Lloris í marki Tottenham og í stöngina og inn. Tottenham var líklegt til að jafna metin en tvö mörk á sjö mínútum í fyrri hálfleik gerðu út um leikinn. Fyrst varð Sandro fyrir því óláni að skora sjálfsmark á 34. mínútur og á 41. mínútu lagði Sergio Agüero boltann í netið eftir fyrirgjöf Navas og staðan 3-0. Andre Villas-Boas náði ekki að vekja vonarneista í brjósti leikmanna Tottenham í hálfleiknum. Liðið mætti jafn andvana til leiks eftir hálfleikinn og í byrjun og Sergio Agüero skoraði aftur á 50. mínútu. Fimm mínútum síðar bætti Negredo fimmta markinu við. Gylfi Sigurðsson byrjaði leikinn á bekknum hjá Tottenham og kom inn á 61. mínútu og náði ekki að setja mark sitt á leikinn enda úrslitin ráðin og enginn kraftur í liði Tottenham. Navas skoraði annað mark sitt í uppbótartíma og fullkomnaði niðurlægingu Tottenham. City hefur skorað 26 mörk á heimavelli og unnið alla sex leiki sína heima sem er besta byrjun á heimavelli frá byrjun Tottenham 1962. Manchester City lyfti sér upp í fjórða sæti deildarinnar með sigrinum. Liðið er með 22 stig, sex stigum minna en topplið Arsenal. Tottenham féll með tapinu niður í 9. sæti þar sem liðið situr með 20 stig og þrjú mörk í mínus í markatölu.
Enski boltinn Mest lesið Stöðvaði leikinn og skutlaði sér á eftir gæs Íslenski boltinn Furðar sig á verðlaunafénu eftir úrslit bikarsins Íslenski boltinn Andri Lucas svaraði fautaskap með marki Enski boltinn Arsenal sótti þrjú stig í hitaleik Enski boltinn Leitar að áhugamanni til að vinna Littler Sport „Öll tækifæri sem ég hef fengið eru frá Íslandi“ Sport „Stundum þarftu smá löðrung til að fara í fimmta gírinn“ Sport Valshjartað slær enn hjá hetju KR Íslenski boltinn Harðvítugar deilur og tómur völlur hjá nýju liði Alberts Fótbolti Ætlar ekki að hlusta á sófasérfræðinga sem vita ekki neitt Formúla 1 Fleiri fréttir Arsenal sótti þrjú stig í hitaleik Andri Lucas svaraði fautaskap með marki Boðið upp á þvílíka dramatík í enska boltanum Tottenham fékk sín fyrstu stig tímabilsins Bragðdauft og svekkelsi á Anfield Hull enn taplaust í deildinni Neitar að hafa tekið þátt í mannráni Hvolfdi bílnum á leið á æfingu Arteta mjög hissa á ummælum Jesus „Vil spila fyrir félagið eins lengi og mögulegt er“ Jólahátíðin snýr aftur á Englandi Góður gangur í viðræðum Arsenal og Arteta Dómur gæti hafa verið kveðinn upp í máli Manchester City Pochettino segir að Englandsmeistaratitillinn ætti að vera dæmdur af Chelsea Harmsaga Mudryk heldur áfram Stjörnur Chelsea tóku yfir í níu marka leik Þrumufleygur Ødegaard tryggði Arsenal sigur gegn Napoli Sá svekkti tryggði Liverpool sigur Rooney segir að United hafi gert tvenn stór mistök í sumar Átti ekki að dæma víti á Liverpool en ekki heldur að líta á skjáinn Fyrrverandi leikmaður Liverpool leitar liðs á LinkedIn Segir að Haaland muni verða besti markaskorari allra tíma Hull tapaði úrvalsdeildarslag í deildarbikarnum Mac Allister svekktur að fá ekki nýjan samning Treyjur Liverpool taka breytingum Ekki sést á leikjum Nottingham Forest síðan í febrúar Ekkert benti til brottfarar Howe en félagið var með plan Joey Barton mun þurfa að dúsa áfram í fangelsi Raya lengi að taka sig til og Gabriel bestur í glímu Sjáðu sigurmark Ødegaard og glæsilegt jöfnunarmark Maitland-Niles Sjá meira