Enski boltinn

Enginn van Persie og óvíst um Suarez

Kolbeinn Tumi Daðason skrifar
Stuðningsmenn United saknar markaskorara síns.
Stuðningsmenn United saknar markaskorara síns. Nordicphotos/Getty
Manchester United verður án Hollendingsins Robin van Persie þegar Liverpool kemur í heimsókn á Old Trafford í deildabikarnum annað kvöld.

Hollendingurinn var ekki með í tapinu gegn City í deildinni um helgina en framherjinn gleymir við nárameiðsli. David Moyes, stjóri United, segir smá möguleika á því að van Persie verði klár í slaginn í deildinni um helgina.

Brendan Rodgers, stjóri Liverpool, hefur ekki tekið ákvörðun um það hvort Luis Suarez spili. Úrúgvæinn er búinn að sitja af sér tíu leikja bann sitt þannig að hann er klár ef kallið kemur.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×