Erlent

Tillit hefði verið tekið til sérstöðu Íslands

Guðsteinn Bjarnason skrifar
Stækkunarmálastjóri Evrópusambandsins kynnir stöðuskýrsluna í gær.
Stækkunarmálastjóri Evrópusambandsins kynnir stöðuskýrsluna í gær. nordicphotos/AFP
Þegar íslensk stjórnvöld ákváðu að hætta aðildarviðræðum við Evrópusambandið var skammt í að niðurstaða næðist, þar sem tekið hefði verið tillit til sérstöðu Íslands.

Þetta fullyrti Stefan Füle, stækkunarstjóri Evrópusambandsins, þegar hann kynnti stöðuna í stækkunarmálum sambandsins á Evrópuþinginu í gærmorgun.

„Ég held að við höfum ekki verið svo langt frá því að geta kynnt íbúum Íslands samkomulag sem myndi taka til greina bæði sérstöðu Íslands og meginreglur Evrópusambandsins og almennar reglur leiksins,“ sagði Füle.

Füle ítrekaði að Evrópusambandið væri hvenær sem er reiðubúið til að halda áfram aðildarviðræðum við Ísland, kysu Íslendingar það.

„Okkar megin höfum við ekki dregið okkur í hlé,” sagði hann. „Ég er enn sannfærður um að við gætum náð niðurstöðu sem yrði öllum aðilum til hagsbóta og jákvæð.“

Í stöðuskýrslu stækkunardeildar framkvæmdastjórnarinnar, sem kynnt var í gær, segir að aðildarviðræðurnar við Ísland hafi verið langt komnar, þótt enn hafi verið óleyst ýmis ágreiningsmál.

Í skýrslunni er fjallað um stöðu aðildarviðræðna við þau átta ríki sem ESB hefur átt í viðræðum við um aðild. Auk Íslands eru þetta Tyrkland og Balkanskagaríkin Albanía, Bosnía og Hersegóvína, Kósóvó, Makedónía, Serbía og Svartfjallaland.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×