Erlent

Skotbardagi kostaði tugi lífið í Malasíu

Guðsteinn Bjarnason skrifar
Jamalul Kiram Sendi 200 manna lið frá Filippseyjum í síðasta mánuði og lagði undir sig heilt þorp.
Jamalul Kiram Sendi 200 manna lið frá Filippseyjum í síðasta mánuði og lagði undir sig heilt þorp. nordicphotos/AFP
Rúmlega þrjátíu manns létu lífið í skotbardaga milli öryggissveita í Malasíu og liðsmanna soldáns frá Filippseyjum, sem gerir tilkall til landsvæðis á eyjunni Borneó.

Soldáninn Jamalul Kiram sendi 200 manna lið til Filippseyja í síðasta mánuði og lagði undir sig heilt þorp. Mikið pólitískt uppnám varð í kjölfarið, bæði í Malasíu og á Filippseyjum.

Soldáninn segist eiga erfðatilkall til Sulu-héraðs á sunnanverðum Filippseyjum og gerir einnig tilkall til Sabah-héraðs á eyjunni Borneó, en það hérað tilheyrir Malasíu. Mikilvægar náttúruauðlindir eru í Sabah-héraði.

Stjórnarherinn í Malasíu brást við á þriðjudag með loftárásum, en svo virðist sem flestir Filippseyingarnir, sem fylgja Kiram, hafi sloppið óskaddaðir frá þeim.

Í gær réðust svo sveitir lögreglu og hers á liðsmenn soldánsins og lauk þeim hildarleik með því að 31 Filippseyingur lá í valnum.

Najib Razak, forsætisráðherra Malasíu, hefur hafnað vopnahléstilboði frá soldáninum: „Þeir verða að leggja niður vopn, og það eins fljótt og hægt er,“ sagði Razak.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×