Ferðamenn stundum slegið tvær flugur í einu höggi Eiður Þór Árnason skrifar 26. maí 2026 19:31 Ljósmyndirnar voru teknar um klukkan 14 í dag. Hjördís Lilja Lorange Háhyrningar sáust við Sky Lagoon í Kópavogi síðdegis í dag. Vakti það mikla lukku meðal baðgesta og starfsmanna þegar tveir þeirra syntu í átt að Nauthólfsvík. „
Þetta kemur mér ekkert stórkostlega á óvart. Við höfum séð hvali reglulega hérna hjá okkur, oftast seli svo sem, en hvalir koma alveg fyrir og við eigum bara mjög eftirminnileg augnablik með þeim. En þetta er reyndar í fyrsta sinn sem ég heyri af háhyrningum,“ segir Ragnheiður Harpa Haraldsdóttir, markaðs- og upplifunarstjóri Sky Lagoon, sem frétti af háhyrningunum frá samstarfsfólki sínu. „Þetta er alltaf jafn magnað og mikil upplifun að sjá þetta og maður finnur það líka hjá gestunum. Þetta alveg gerir daginn og ferðina jafnvel.“ Eitt sinn hafi fjölskylda til að mynda verið búin að útbúa lista yfir hluti sem þau vildu upplifa í ferð sinni til Íslands og undir lokin einungis átt eftir að fara í Sky Lagoon og sjá seli. „Þau voru á leiðinni upp á flugvöll þegar þau fóru til okkar og sáu selina þar. Þannig að fólk er alveg að slá tvær flugur í einu höggi þarna.“ Við Sky Lagoon í dag.Hjördís Lilja Lorange Æpti þegar hann sá hval Gaman sé fyrir gesti og starfsfólk að upplifa þetta saman: „Þetta er alveg ótrúlegt þegar þetta gerist,“ segir Ragnheiður. Hún segir að dýrin stoppi yfirleitt stutt utan við lónið en selir séu þar eitthvað lengur. Eitt sinn hafi starfsmaður hrifist af fallegu sólarlagi og farið inn í gufubað eftir að gestir voru farnir til að taka upp myndband. „Það er búið að loka og sólin er að setjast og hann tekur vídeó og svo bara allt í einu heyrist í honum hálfpartinn öskra, af því að það hoppar hvalur þarna upp úr sjónum.“ „Við erum bara ótrúlega heppin að fá að eiga svona mikla nánd við náttúruna innan höfuðborgarinnar,“ bætir Ragnheiður við. Vöktu mikla athygli meðal ferðamanna Hjördís Lilja Lorange náði ljósmyndum af háhyrningunum tveimur í dag þegar þeir sáust synda nálægt landi í átt að Nauthólfsvík. Vöktu þeir mikla athygli meðal viðstaddra gesta Sky Lagoon sem flestir voru erlendir ferðamenn, að sögn Hjördísar. Hún hafi ekki orðið vör við háhyrninga á þessum slóðum áður, þrátt fyrir að vera vön því að synda í sjónum við Nauthólsvík og Gróttu. Fréttin hefur verið uppfærð.
Kópavogur Dýr Sky Lagoon Hvalir Sundlaugar og baðlón Mest lesið Átta í bílunum fjórum: Sumir alvarlega slasaðir Innlent Illa brugðið en heill á húfi Innlent Taka sig upp á ógnarhraða og smella beltinu af Innlent Viðvörunarmerki fyrir íslenskt samfélag Innlent Lýsa eftir Halldóri Inga Innlent Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Innlent Sagðir undirbúa stórsókn gegn Hútum Erlent Veittist að flugstjóranum með öxi í tilraun til að fremja hryðjuverk Erlent Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Innlent „Of margar sögur af vondri meðferð“ Innlent Fleiri fréttir „Okkur finnst við vera undanskilin“ Viðvörunarmerki fyrir íslenskt samfélag Taka sig upp á ógnarhraða og smella beltinu af Átta í bílunum fjórum: Sumir alvarlega slasaðir Smella af sér bílbeltunum á ógnarhraða og breytingar í Kerlingarfjöllum Gul viðvörun eftir stóra skriðu Illa brugðið en heill á húfi Handtekinn grunaður um að beita piparúða Lýsa eftir Halldóri Inga „Of margar sögur af vondri meðferð“ Halda hækkunum innan við 2,5 prósent og hætta við lækkun systkinaafsláttar Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Aurskriða féll á veginn og honum lokað Starfsmaður Reykjavíkurborgar smitaðist af nóróveiru Heiða í veikindaleyfi Fagfélögin kalla eftir heimild til að slíta kjarasamningum Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Fara fram á 16 ár yfir meintum morðingja Allir sautján frjálsir ferða sinna „Við erum óþolinmóð“ Minni gjaldahækkanir kosti ríkissjóð 2,5 milljarða Þetta eru stæðin sem borgin hefur endurheimt Segir ágreininginn í Landsvirkjun ekki snúast um arðgreiðslur Geri málið tortryggilegt að neita að svara „Við höfum séð mikla aukningu á því á Íslandi“ Íslensk skólastúlka varð fyrir táragasi í París Laug að Morgunblaðinu um nýjan KFC-stað Stefna á þrjú þúsund hektara en endurheimtu þrettán Ein matskeið og þá er dauðinn vís Beint: Opið málþing um heimilisleysi Sjá meira