Ítarleg greining á glæsimarki Gylfa Stefán Árni Pálsson skrifar 1. október 2013 11:30
Tottenham Hotspur fór frábærlega af stað gegn Chelsea um síðustu helgi þegar Gylfi Þór Sigurðsson kom liðinu yfir eftir tæplega tuttugu mínútna leik. Leikurinn fór að lokum 1-1 sem verða teljast fín úrslit fyrir Tottenham gegn svona sterku liði. Chelsea liðið var vel staðsett í aðdraganda marksins en einstakt spil leikmanna Tottenham skilaði boltanum í netið.Kyle Naughton, leikmaður Tottenham, fékk frábæran sendingu og framlengdi boltann á Gylfa Sigurðsson sem því næst tekur á rás. Branislav Ivanovic, leikmaður Chelsea, fer út í Gylfa og þá opnast mikið svæði á vinstri kantinum fyrir aftan bakvörðinn.Gylfi sendir því næst boltann á Moussa Dembele sem á þeim tíma vel dekkaður af John Obi Mikel. Mikel gerir aftur á móti mistök og reynir að komast framfyrir leikmanninn og missir því næst Dembele í gegn. Dembele framlengir boltann á Christian Eriksen sem var staðsettur framar á vellinum.Eriksen nýtir sér plássið sem hafði opnast fyrir aftan Branislav Ivanovic og fer rakleitt í þá holu.Daninn dregur þá David Luiz og Frank Lampard í áttina að hornfánanum og á þeim tíma er Ivanovic enn að elta Gylfa Þór Sigurðsson. Inn í vítateignum er því aðeins einn Chelsea maður eftir og það kom í hlut John Terry að passa upp á Roberto Soldado. Eriksen sendir boltann laglega í gegnum þá Luix og Lampard sem ratar á Soldado.Spánverjinn leggur því næst boltann ótrúlega vel fyrir Gylfa Þór Sigurðsson sem afgreiddi boltann laglega í netið. Færslan á Christian Eriksen í aðdraganda marksins er einstök og splundrar í raun vörn Chelsea. Gylfi nýtir sér það pláss sem hann fær og snerting Soldado sem leggur markið upp fyrir Íslendinginn er lokanaglinn á ótrúlega vel framkvæmda sókn frá þeim hvítklæddu. Markið glæsilega má sjá í spilaranum efst í fréttinni.
Enski boltinn Mest lesið Magnús í sjúkrabíl af Hlíðarenda Handbolti Segir pabba hafa hlaupið á sig Sport Viktor varði fleiri en Nielsen í sigri í Frakklandi Handbolti Uppgjörið: Grindavík - Valur 93-67 | Grindvíkingar skelltu í lás Körfubolti Andri fékk ekki að hjálpa pabba og lið Guðjóns Vals vann upp mikið forskot Handbolti „Ætla ekkert að hengja þetta bara á þá“ Körfubolti Uppgjörið: Valur - FH 32-30 | Aftur komnir með frumkvæðið Handbolti Stjörnufólk stendur í ströngu á sunnudaginn Körfubolti Uppgjörið: Grindavík/Njarðvík - Þór/KA 2-1| Nýliðarnir með dramatískan sigur í fyrsta heimaleiknum Íslenski boltinn Sagan með Val en KR á flugi Íslenski boltinn Fleiri fréttir Mainoo áfram í Manchester næstu árin Parker hættur hjá Burnley | Tekur Gerrard við? Salah ekki sagt sitt síðasta hjá Liverpool Mudryk áfrýjaði fjögurra ára banni Sú sigursælasta setur skóna á hilluna Guardiola sá langþráða endurkomu Benonýs Breka Gremja í City-mönnum sem spila þrjá leiki á sjö dögum Ipswich sigri frá sæti í ensku úrvalsdeildinni Stones rifar seglin hjá City Knattspyrnukona missti fóstur á æfingu: „Þeir björguðu líklega lífi mínu“ Fernandes nálgast stoðsendingametið eftir sigur United Fá leyfi til að leika sér í fríinu Fékk sér tebolla með Ratcliffe Frá út leiktíðina og missir af HM Fernández kom Chelsea í bikarúrslit Vill skrúfa fyrir lekann eftir að rakarinn birti byrjunarliðið Mörkin úr enska: Skaut Arsenal á toppinn og dramatíkin allsráðandi á botninum Salah gæti hafa spilað sinn síðasta leik fyrir Liverpool Eze skaut Arsenal aftur á toppinn Manchester City tryggði sér farmiða í úrslitaleikinn Þriðji sigur Liverpool í röð Tottenham vann loksins en er enn í fallsæti Fulham vann og Liverpool getur komist upp fyrir Villa Andlát Jota notað sem barefli á leikmenn Liverpool Allt slökkt á Leikvangi ljóssins Hákon hefur bætt sig á öllum sviðum og framlengir við Brentford Segir Fabregas að halda sig fjarri „martröðinni“ hjá Chelsea Kallar eftir þjónustu: „Hver er annars tilgangurinn?“ Valtar yfir eigendur Chelsea og segir stuðningsmenn fyllast viðbjóði Sjáðu Haaland skjóta Manchester City á toppinn Sjá meira
Uppgjörið: Grindavík/Njarðvík - Þór/KA 2-1| Nýliðarnir með dramatískan sigur í fyrsta heimaleiknum Íslenski boltinn
Uppgjörið: Grindavík/Njarðvík - Þór/KA 2-1| Nýliðarnir með dramatískan sigur í fyrsta heimaleiknum Íslenski boltinn