Enski boltinn

Menn færðir í járn á Englandi vegna hagræðingu úrslita

Kolbeinn Tumi Daðason skrifar
Nordicphotos/Getty
Tveir menn hafa verið handteknir í Englandi grunaðir um að reyna að hagræða úrslitum í enskri knattspyrnu. Þá var fimm sleppt lausum gegn tryggingu.

Breskir fjölmiðlar segja nú loksins ljóst að Englendingar geti ekki litið framhjá hættunni á hagræðingu úrslita. Fregnir um slík athæfi hafa borist víða úr álfunni og heiminum undanfarin misseri. Ógnin við íþróttina virðist mikil.

Daily Telegraph birtir viðtal við karlmann sem fullyrðir að hann hafi haft áhrif á úrslit í leikjum í undankeppni heimsmeistaramóts og í fleiri löndum.

„Ég stunda hagræðingu úrslita í Ástralíu, Skotlandi, Írlandi, Evrópu, leikjum í HM og undankeppni HM,“ sagði sá ónafngreindi. Heldur hann því fram að hann hreinlega sé með landslið eins Afríkuríkis í vasanum.

Guardian fjallar ítarlega um málið á heimasíðu sinni í dag.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×