Enski boltinn

Luiz og Eto'o ekki með

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Nordic Photos / Getty Images
Jose Mourinho, stjóri Chelsea, hefur greint frá því að David Luiz og Samuel Eto'o verða ekki með liðinu í leiknum gegn Southampton í ensku úrvalsdeildinni á sunnudag.

Báðir eiga við meiðsli að stríða en þetta þýðir líklega að Fernando Torres verði í byrjunarliði Chelsea í fyrsta sinn síðan hann meiddist í lok síðasta mánaðar.

„David æfði með liðinu í dag en þetta var fyrsta æfingin hans og hann er ekki í standi til að spila um helgina,“ sagði Mourinho við enska fjölmiðla í dag.

„Eto'o er ekki með en mér skilst að hann sé meiddur í vöðva. Það þýðir að hann verði frá næstu tvær vikurnar.“

Chelsea tapaði fyrir Basel, 1-0, í Meistaradeild Evrópu í vikunni og Moruinho sagði að það hefðu verið vonbrigði.

„Ég mun aldrei sætta mig við svona lélega frammistöðu hjá mínu liði en ég verð að lifa með þessu. Við munum gera allt sem við getum til þess að þetta endurtaki sig ekki.“




Fleiri fréttir

Sjá meira


×