Enski boltinn

Cech trommar með trommara Queen

Cech er seigur á trommusettinu.
Cech er seigur á trommusettinu.
Petr Cech, markvörður Chelsea, fékk langþráðan draum uppfylltan á dögunum er hann fékk að spila á trommur með goðinu sínu, Roger Taylor, trommuleikara Queen.

Þeir félagar hittust í flugi á dögunum. Þeir tóku upp spjall þar sem Cech dýrkar Taylor sem sjálfur er harður stuðningsmaður Chelsea.

Taylor bauð síðan Cech heim til sín þar sem þeir spiluðu á trommur saman.

Tékkneski markvörðurinn var ekki að snerta kjuða í fyrsta sinn um ævina eins og sjá má á innslaginu hér að neðan.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×