Carragher og Neville rökræða um Gerrard og Scholes Kolbeinn Tumi Daðason skrifar 18. september 2013 15:30 Neville og Carragher ósáttir í viðureign United og Liverpool á Old Trafford. Nordicphotos/Getty „
Paul Scholes er besti leikmaður sem ég hef spilað með og ég spilaði með þokkalegum leikmönnum,“ segir sparkspekingurinn Gary Neville. Neville og Jamie Carragher rökræddu á Sky á dögunum hver væri besti enski miðjumaðurinn af Frank Lampard, Paul Scholes og Steven Gerrard. Gerðu þeir það að beiðni áhorfenda á mánudagsþátt þeirra félaga. Carragher, sem lék með Gerrard hjá Liverpool, var gallharður á því að Gerrard væri sá besti. Svo Lampard og loks Scholes. „Gerrard var maður stóru leikjanna eins og í Istanbúl og Cardiff. Lampard er svipaður. Hann skoraði í úrslitaleik Meistaradeildarinnar,“ sagði Carragher og bætti við að Scholes væri þar rétt á eftir. Neville sagðist ekki vilja bera saman leikmenn en bætti svo við að Scholes væri sá besti sem hann hefði spilað með. Hann var duglegur að verja fyrrum liðsfélaga sinn. Ekki skipti öllu máli að skora mörk heldur að stjórna gangi leiksins. „Sir Alex Ferguson lagði alla áherslu á að stjórna leiknum. Xavi, Pirlo og Scholes eru ekki markaskorar. Auðvitað skora þeir mörk en þeir stjórna umfram allt gangi leiksins. Hægja á leiknum og auka tempóið þegar þess þarf.“ „Allt fór í gegnum Scholes og hann stjórnaði leiknum,“ sagði Neville og bætti við að Scholes hefði verið límið sem hélt Giggs, Beckham, Keane og Ronaldo saman. Carragher spurði þá hvers vegna Sven Göran Eriksson, landsliðsþjálfari Englands, hefði sett Scholes á vinstri kantinn en Lampard á miðjuna ásamt Gerrard fyrst Scholes var bestur? Neville var á því að það hefði verið auðveldast fyrir Eriksson að setja Scholes þangað frekar en einhvern annan. Hann ætlaði þó ekki að segja neitt um hvort sú ákvörðun hefði verið rétt eða röng.
Enski boltinn Mest lesið Magnús í sjúkrabíl af Hlíðarenda Handbolti Segir pabba hafa hlaupið á sig Sport Viktor varði fleiri en Nielsen í sigri í Frakklandi Handbolti Uppgjörið: Grindavík - Valur 93-67 | Grindvíkingar skelltu í lás Körfubolti „Ætla ekkert að hengja þetta bara á þá“ Körfubolti Besta sætið: Vítaspyrnuvæl og stórleikir um helgina Sport Andri fékk ekki að hjálpa pabba og lið Guðjóns Vals vann upp mikið forskot Handbolti Stjörnufólk stendur í ströngu á sunnudaginn Körfubolti „Höfum beðið eftir þessu alla úrslitakeppnina“ Körfubolti Uppgjörið: Valur - FH 32-30 | Aftur komnir með frumkvæðið Handbolti Fleiri fréttir Mainoo áfram í Manchester næstu árin Parker hættur hjá Burnley | Tekur Gerrard við? Salah ekki sagt sitt síðasta hjá Liverpool Mudryk áfrýjaði fjögurra ára banni Sú sigursælasta setur skóna á hilluna Guardiola sá langþráða endurkomu Benonýs Breka Gremja í City-mönnum sem spila þrjá leiki á sjö dögum Ipswich sigri frá sæti í ensku úrvalsdeildinni Stones rifar seglin hjá City Knattspyrnukona missti fóstur á æfingu: „Þeir björguðu líklega lífi mínu“ Fernandes nálgast stoðsendingametið eftir sigur United Fá leyfi til að leika sér í fríinu Fékk sér tebolla með Ratcliffe Frá út leiktíðina og missir af HM Fernández kom Chelsea í bikarúrslit Vill skrúfa fyrir lekann eftir að rakarinn birti byrjunarliðið Mörkin úr enska: Skaut Arsenal á toppinn og dramatíkin allsráðandi á botninum Salah gæti hafa spilað sinn síðasta leik fyrir Liverpool Eze skaut Arsenal aftur á toppinn Manchester City tryggði sér farmiða í úrslitaleikinn Þriðji sigur Liverpool í röð Tottenham vann loksins en er enn í fallsæti Fulham vann og Liverpool getur komist upp fyrir Villa Andlát Jota notað sem barefli á leikmenn Liverpool Allt slökkt á Leikvangi ljóssins Hákon hefur bætt sig á öllum sviðum og framlengir við Brentford Segir Fabregas að halda sig fjarri „martröðinni“ hjá Chelsea Kallar eftir þjónustu: „Hver er annars tilgangurinn?“ Valtar yfir eigendur Chelsea og segir stuðningsmenn fyllast viðbjóði Sjáðu Haaland skjóta Manchester City á toppinn Sjá meira