Enski boltinn

Ferguson: Rooney fór fram á sölu

Stefán Árni Pálsson skrifar
Alex Ferguson
Alex Ferguson nordicphotos / getty
Sir Alex Ferguson, fyrrum knattspyrnustjóri Manchester United, hefur nú staðfest að Wayne Rooney, leikmaður United, hafi farið fram á sölu í lok síðasta tímabils.

„Hann bað um að fá að fara frá félaginu,“ sagði Ferguson í viðtali við bandarísku sjónvarpsstöðina PBS.

„Hann kom inn á skrifstofu mína daginn eftir að liðið hafði tryggt sér Englandsmeistaratitilinn og fór fram á sölu, það voru samt aldrei nein leiðindi á milli okkar.“

„Wayne er óheppinn þeim skilningi að hann er aðal stjarna Englendinga og því eru fjölmiðlar ávallt að fjalla um allt sem hann gerir.“






Fleiri fréttir

Sjá meira


×