Enski boltinn

Nýliðar Hull unnu Newcastle | WBA rúllaði yfir Sunderland

Stefán Árni Pálsson skrifar
Þremur leikjum var að ljúka í ensku úrvalsdeildinni en nýliðar Hull gerðu sér lítið fyrir og lögðu Newcastle á útivelli en leiknum lauk með sigri Hull 3-2.

Loic Remy gerði fyrsta mark leiksins fyrir heimamenn eftir tæplega tíu mínútna leik en Robbie Brady jafnaði síðan metin fyrir gestina þegar hann skaut boltanum í gegnum klofið á Tim Krul í markið Newcastle.

Loic Remy var aftur mættur rétt undir lok fyrri hálfleiksins og skoraði sitt annað mark í leiknum og annað mark heimamanna. Staðan var því 2-1 í hálfleik.

Í upphafi síðari hálfleiksins skoraði Ahmed Elmohamady frábært mark fyrir Hull með skalla eftir aukaspyrnu frá Robbie Brayd.

Það var síðan Sone Aluko sem tryggði Hull stigin þrjú korteri fyrir leikslok með stórkostlegu markið er hann hamraði boltann viðstöðulaust í netið stöngin inn.

West Bromwich Albion gekk frá Sunderland 3-0 á heimavelli en liðið hafði aðeins skorað eitt mark í ensku deildinni fram að þessu leik.

Everton vann flottan útisigur á West Ham United 3-2.

Staðan í ensku úrvalsdeildinni.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×